Hreyfingin

Búið er að klippa nafn Borgarahreyfingarinnar í tvennt og skipta liði eftir því. Eru engin takmörk fyrir fíflagangi, heimsku og mér liggur við að segja valdafíkn fólks?

“Þingmenn Borgarahreyfingarinnar hafa klofið sig frá flokknum og stofnað nýtt afl sem heitir Hreyfingin. Samkvæmt heimildum mbl.is verður kynnt á blaðamannafundi á Thorvaldsen bar sem hefst klukkan tvö. Viðtöl munu birtast í Mbl sjónvarpi.

Þór Saari, einn þingmannanna, segir  í Morgunblaðinu í dag, að tilgangur Borgarahreyfingarinnar hafi verið að ná fólki inn á þing til að ná fram ákveðnum málefnum og hætta svo þegar þeim hefði verið náð eða þegar við sæjum fram á að þau næðust ekki.

„Nú á að breyta eðli hreyfingarinnar og það er ekki ásættanlegt að okkar mati,“ segir Þór.

Comments are closed.