Archive for September, 2009

17. mars 2006

Friday, September 18th, 2009

17. mars 2006 | 16:05:00

Upphituð biðskýli og rafrænar upplýsingatöflur fyrir viðskiptavini Strætó

Sjálfstæðismenn fluttu á síðasta fundi umhverfisráðs tvær tillögur til að bæta þjónustu við viðskiptavini Strætó. Annars vegar að hafinn verði undirbúningur að smíði og upsetningu upphitaðra biðskýla á fjölförnum biðstöðvum strætisvagna í Reykjavík, og hins vegar að hefja nú þegar undirbúning að því að töflur með upplýsingum um rauntímaferðir strætisvagna verði settar upp á skiptistöðvum og biðstöðvum strætisvagna í borginni.

Tillögurnar hljóða svo:

Tillaga um upphituð biðskýli 
,,Umhverfisráð Reykjavíkur samþykkir að hefja undirbúning að smíði og upsetningu upphitaðra biðskýla á fjölförnum biðstöðvum strætisvagna í Reykjavík. Vinna skal að málinu í samstarfi við framkvæmdasvið borgarinnar, Strætó bs. og eftir atvikum við það einkafyrirtæki, sem gert hefur samning við Reykjavíkurborg um uppsetningu og rekstur biðskýla í borginni. Markmið verkefnisins verður að reisa biðskýli, sem henta íslenskri vetrarveðráttu, halda vatni og vindum og eru auk þess upphituð, strætisvagnafarþegum til hagsbóta. Stefnt skal að því að fyrstu skýlin verði tekin í notkun ekki síðar en haustið 2007.” 

Tillaga um töflur með upplýsingum um rauntíma strætisvagna 
,,Umhverfisráð Reykjavíkur samþykkir að hefja nú þegar undirbúning að því að töflur með upplýsingum um rauntímaferðir strætisvagna verði settar upp á skiptistöðvum og biðstöðvum strætisvagna í borginni. Stefnt skal að því að fyrstu töflurnar verði settar upp á þessu ári. Jafnframt verði biðstöðvum og skiptistöðvum gefin nöfn til að auðvelda ferðamönnum og öðrum notkun kerfisins.”

Hreyfingin

Friday, September 18th, 2009