Archive for June, 2009

Íslenska 101

Friday, June 26th, 2009


VILDI SJÁ JACKSON ÁÐUR EN HANN MYNDI DEYJA

(dv.is)

Góðar fréttir

Sunday, June 21st, 2009

http://www.timesonline.co.uk/tol/news/politics/article6548155.eceSkyldu Halldór og Davíð hafa vitað það líka?

Femínismi

Saturday, June 20th, 2009

“Eftir að Ólafur Þ. Stephensen tók við sem ritstjóri fannst mér feminisk áhrif aukast allverulega, því miður. Ég gaf blaðinu smá tíma en feminisk umfjöllun blaðsins jókst bara enn frekar og á tímabili hélt ég að það væri orðin ritstjórnarleg stefna blaðsins að ráða hvern feministablaðamanninn á fætur öðrum til starfa. Þetta varð til þess að mér fannst nóg komið og sagði blaðinu upp.

Ég hef upplifað feminiska blaðamenn þannig að þeir segja aldrei fréttir. Þetta er miklu frekar spurning um hvort þeir matreiði fréttir og umfjöllunarefnið ofan í fólk í þeim tilgangi að móta og breyta almenningsálitinu?

Sé það raunin þá mun ég ekki kaupa blaðið nema breyting verði þar á.

Með tilkomu nýrra eigenda nú nýlega þá hefur blaðið skánað örlítið. Feminiskar áherslur minnkað og blaðið orðið eðlilegra. Það er von mín að gengið verði lengra í þá áttina.” (viðbrögð við: Deild um Morgunblaðið: “í fyrsta skipti alvöru fjölmiðill.” eyja.is)


Icesave 18 júní 2008

Sunday, June 14th, 2009

 Af vef Landsbankans:

 

Fréttir og tilkynningar - 18. júní 2008 13:11

Icesave valinn besti netreikningurinn

Moneyfacts Awards 2008Icesave, sparnaðarreikningur Landsbankans í Bretlandi, hefur verið valinn besti netreikningurinn hjá fjármálavefsíðunni Moneyfacts. Moneyfacts er ein öflugasta og vinsælasta fjármálavefsíðan í Bretlandi en þar geta neytendur sótt sér óháða ráðgjöf í fjármálum. Valið náði yfir allan breska fjármálamarkaðinn og felst því í verðlaununum mikil viðurkenning á gæðum Icesave innlánavörunnar.

Icesave, sem stofnað var í Bretlandi í október 2006, hefur náð framúrskarandi árangri og er fjöldi viðskiptavina nú yfir 250 þúsund. Á komandi ári mun Landsbankinn sækja inn á fleiri evrópska markaði. Opnun Icesave í Hollandi er fyrsta skrefið í þá átt. Viðtökur þar í landi hafa farið fram úr björtustu vonum, en viðskiptavinir eru nú þegar orðnir um 20 þúsund á aðeins rúmum hálfum mánuði.

“Það að Icesave skuli vera viðurkennt af óháðum og virtum aðila sem Moneyfacts sýnir svo ekki verður um villst hversu góð innlánavara Icesave netreikningurinn er. Icesave hefur fljótt skipað sér sess meðal vinsælustu netreikninga á breska sparifjármarkaðinum með því að bjóða upp á einfalda vöru, samkeppnishæf kjör og notendavænt viðmót á netinu. Við stefnum að sjálfsögðu á að halda áfram þessum frábæra árangri og þessi viðurkenning er okkur mikil styrkur í frekari uppbyggingu innlánastarfsemi á meginlandi Evrópu,” segja Sigurjón Þ. Árnason og Halldór J. Kristjánsson, bankastjórar Landsbankans.

Gestur eða Guðjón? Hvor var það

Saturday, June 13th, 2009

http://www.dv.is/frettir/2009/6/13/taraflod-thingi/ - dv.is

Hvað heitir þetta leikrit eiginlega?

Thursday, June 11th, 2009

Ráðuneytisstjórar neita að hætta, ríkissaksóknari neitar að hætta, útrásravíkingar eru ráðnir aftur (af ríkinu) til ‘nýju’ bankanna til að sjá um sjóði og eignir ríkisins, alþingismenn og ráðherrar snúast eins og vindhanar og virðast ekki vita eitt eða neitt, skilaboð og bréf berast ekki á milli ráðuneyta og starfsmenn þeirra kunna ekki á einföld upptökutæki og eyða ‘óvart’ upptökum. Hvað heitir þetta leikrit eiginlega og hver samdi?

Soldið svona eins og Ísland 2009

Sunday, June 7th, 2009

Litvinenko suspect given key security role

http://www.timesonline.co.uk/tol/global/

Lífið er yndislegt…

Saturday, June 6th, 2009

“Hver fjölskylda ábyrgist 10,6 miljónir vegna Bjögganna”