rennandi blóð
Friday, October 24th, 2008„Við viljum að ráðamenn finni fyrir því að við erum til og það renni blóðið í okkur og göngum frá Austurvelli að ráðherrabústaðnum með kyndla og gjallarhorn.“ Kolfinna segir að ansi stór hópur sé kominn í mótmælagönguna en á meðal mótmælenda eru Jón Baldvin Hannibalsson, faðir hennar og fyrrverandi utanríkisráðherra, Þorvaldur Gylfason, Páll Óskar Hjálmtýsson, Daníel Ágúst og Ómar Ragnarsson”
Mikið hefði nú verið gott ef blóðið hefði líka runnið í öllu þessu góða og fína fólki þegar “við” ákváðum að “bjarga” Írak og það hefði mætt í mótmælastöðurnar sem haldnar voru af því tilefni við Stjórnarráðið og á Austurvelli.