Jíbbí
“Geir Harde lokar á Nasdaq markaðinum í dag”
Skyldi hann annars tilkynna í leiðinni forlegt gjaldþrot íhalds og samfylkingar?
“Geir Harde lokar á Nasdaq markaðinum í dag”
Skyldi hann annars tilkynna í leiðinni forlegt gjaldþrot íhalds og samfylkingar?
“Formaður Ljósmæðrafélagsins sagði við það tækifæri að fróðlegt væri að vita hvað utanríkisráðherra þætti mátulegt að konur væru mörgum prósentum undir körlum í launum!”
Eitthvað fyrir sagnfræðinga til að hafa áhyggjur af:
“Dagskrárgerðarkonan vinsæla Oprah Winfrey hefur verið gagnrýnd í Bandaríkjunum fyrir að hafa verið snögg til að kynna bandarískum konum Barac Obama í þætti sínum, en hunsa Söruh Palin, fyrstu konuna í sögu Bandaríkjanna sem er útnefnd til varaforseta.“(eyjan.is)
Hvers á Geraldine Ferraro að gjalda?
“Forseti Íslands er ekki viðstaddur ólympíumót fatlaðra né heldur Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra en Jóhanna Sigurðardóttir, félags- og tryggingamálaráðherra er heiðursgestur íslenska hópsins.”
Fréttastofa ríkisútvarpsins - RUV- er að míga á sig yfir flokkþingi repúblikana í BNA og líkt og á halelúja samkomu demókrata sem haldin var um daginn, þá er fréttamaður gerður út af örkinni til að fylgjast. Sveinn Helgason ‘rakst’ á Henry Kissinger sem tjáði Sveini að hann og McCain hafi verið vinir í þrjátíu ár og hann viti að McCain yrði frábær forseti.
Jeminn! Hvað gat maðurinn annað sagt - að hann væri þess fullviss að McCain væri gamall skíthæll sem ætti ekkert erindi í Hvítahúsið?
Ólafur F. Magnússon, fyrrverandi borgarstjóri, sparaði ekki stóru orðin í garð Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar, forseta borgarstjórnar, á borgarstjórnarfundi í gær. “Það er ekkert að marka orð þín, borgarfulltrúi Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson. Ég bíð spenntur eftir því að sjá hvaða dúsu þú færð fyrir svik þín við mig.”
Kannsi er þetta ekki eins mikið út í hött og ætla mætti því í dv.is í dag má lesa:
“Nafn Vilhjálms heyrist nú æ oftar nefnt í tengslum við starf forstjóra Landsvirkjunar sem auglýst var laust til umsóknar um síðustu helgi.”
ætla ég að leyfa mér að efast um sannleiksgildi þessarar fréttar. Trú því ekki að nein kvennahreyfing sem vill standa undir nafi setji svona fram.
“Innan kvennahreyfingarinnar í Bandaríkjunum hafa einnig margar spurningar vaknað og konur stigið fram sem segjast ekki sjá hvernig 5 barna móðir, með ungabarn með Downs-heilkenni og vanfæra táningsdóttur, geti axlað svo krefjandi og viðamikið starf sem varaforsetaembættið er. Jafnframt því er spurt, hvort kringumstæður Palin-fjölskyldunnar beri ekki með sér að ekki sé þar allt sem sýnist.”