Egill Helgason bægslast áfram í baráttu sinni gegn Vinstri grænum - enn eina ferðina. Nýjasta bloggfærslan frá honum og sennilega sú arfavitlausasta til þessa ber yfirskriftina Natóvæðing. Niðurlag hennar er svona:
“Þegar farið var út í hernaðinn í Afganistans var eitt yfirlýst markmið hans að frelsa konur í landinu undan skelfilegri kúgun. Fólki er tamt að taka öllu sem Bush segir með fyrirvara – líka þegar hann er að segja hluti sem myndu hljóma ágætlega úr munni einhvers annars – en það má samt fullyrða að þetta sé að sumu leyti fyrsta stríðið sem hefur verið háð með femínískum markmiðum.” (http://www.eyjan.is/silfuregils/. leturbreyting mín).
Hefur Kiljufræðingurinn virkilega ekki lesið neitt nema Moggann og Kára litla og Lappa?