Fyrir hornasir
Tuesday, January 30th, 2007Bestu fréttir dagsins: Von er á lyfi við kvefi! Legg til að prófessor Jón Bjarni fái Nóbelinn.
Ég fór í Boots áðan til að fá eitthvað við kvefinu sem er að hrjá mig. Gerði mér svo sem enga von um annað en að verða boðið að kaupa hina klassísku norsku bjróstdropa sem íslenska apótekarstéttin virðist eiga ofurbirgðir af. En apótekarinn í Boots, eftir að hafa spurt mig hvort ég væri pilluæta, rétti mér pakka af ofurpillum, sem hann garanteraði að myndi virka. Hann benit mér meira að segja á að ein pillan væri sérstaklega ætluð til að taka inn fyrir svefnin svo fólk með nefrennsli, hósta og almennan pirring svæfi vel! Já madam - eftir þrjá daga mun þér verða batnað sagði hann. Jamm - Nú er bara að sjá hvað setur.
Þessi færsla var í boði Boots.