June 25th, 2006
“it seems a good in itself to acknowledge, to have enlarged, one´s sense of how much suffering caused by human wickedness there is in the world we share with others. Someone who is perennially suprised that depravity exists, who continues to feel disillusioned (or even incredulous) when confronted with evidence of what humans are capable of inflicting in the way of gruesome, hands-on cruelties upon other humans, has not reached moral or psychological adulthood. No one after a certain age has the right to this kind of innocence, of superficiality, to this degree of ingnorance, or amnesia.” (Sontag, 2003:102)
June 22nd, 2006
CSI - Eskifjörður - Jónas lögga og félagar (Bjarni Svönu á smásjánni og Þórhallur lögga með fingrafaraduftið) leysa gátuna. Fljótt og vel.
Vindbelgurinn Grissom má heldur betur fara að vara sig.
June 22nd, 2006
Ég gæti svo sem skrifað um snålrotturnar í Framsóknarflokknum sem tímdu ekki að borga meira en 1700 kall á haus í kosningasmölunni á meðal “nýbúa” - en þar sem það er alvega að koma Jónsmessa nenni ég því ekki. Þess í stað er hér uppskrift fyrir þyrsta og þreytta til að hressa sig á á Jónsmessunni.
Lítil flaska brennivín -ákavíti
Raspaður börkur af einni sítrónu látinn út í.
Látið standa í um tvo klukkutíma. Börkurinn síaður burt.
Vínið kælt og drukkið
Í staðinn fyrir sítrónubörkinn má nota nokkur blöð af Rifsberjarunna (þarf helst að bera svört ber og því mætti kannski prófa Sólber í staðinn)
Látið standa í flöskunni í sólarhring, þá síðað burtu
Ská og gleðilega Jónsmessu
June 19th, 2006
Í tilefni dagsins setti ég upp bleikan hálsklút í morgun. Klútur þessi sem er úr bómull og nú með trosnaða jaðra, var hæst móðins í kringum 1980 og þá var það algjört must að eiga einn slíkan grip. Sumarið 1981 var ég á ferðalagi í Danmörku ásamt mínum ektamanni og frumburðinum sem þá var 5 ára og leiddist þessi Danmerkurferð óskaplega - alla vega framan af. Litla fjölskyldan ákvað að eftir að hafa skoðað dýragarðinn og öll helstu hergagnasöfn Danveldis yrði hún að skoða bíómenningu Dana. Því var farið í bíó að sjá meistaraverk Lasse Åberg, Selskapsresan. Þreyttur og óánægður sonurinn fór með, þrátt fyrir mótmæli og muldur. Honum hefur sjálfsagt verið mútað með loforði um ís eins og gjarnan var gert í þessari ferð. Ef ég man rétt þá þótti mér myndin ágæt á þeim tíma og þykir reyndar enn. Ein af fáum bíómyndum sem eldist án átaka. Það sem stóð þó uppúr bíóferðinni var að á leiðinni út í lok myndarinnar sá ég hvar þessi líka dýrindis klútur lá á einum stólnum og án þess að hugsa mig um tvisvar tók ég gripinn. Í mörg ár var þetta uppáhalds hálsklúturinn minn sem ég notaði ætíð þrátt fyrir að tískustraumar hefðu löngu dæmt hann úr leik. Nú í nokkur ár hefur hann svo verið ofan í skúffu hjá mér, innan um silkislæður og annað dót þar sem aðrir klútar og slæður hafa tekið við af honum. En í dag var sem sé hans tími kominn aftur og nú var það liturinn sem gerði hann gjaldgengan. Það skrýtna við þetta allt saman þó var að hvert sem ég kom í dag, hvort sem það var í Háskóla Íslands, í miðbæinn eða á kaffihús sá ég enga íklædda/an bleiku - þrátt fyrir áskorun þess efnis. Undantekningin er þó Fífa feministi sem var lang flottust í bleikum buxum og peysu með strollu af vinnuskólakrökkum á eftir sér niðri í Lækjargötu. Flott Fífa!
June 8th, 2006
Finnur vill ekki, Árni Magg vill ekki og Samvinnu-Jón vill ekkert segja. En hvað með Villa á Brekku? Hefur hann verið spurður?
June 6th, 2006

Það eru fleiri kóngar en Bubbi sem fylla tuginn í dag.
June 6th, 2006
Fyrirsagnir frétta á visir.is nú í augnablikinu bjóða upp á smá copy/paste leikfimi:
“Klónað múldýrakyn á verðlaunapalli tilkynnir ákvörðun sína klukkan níu: Hyggst draga sig í hlé frá stjórnmálum”
Annars var það vel við hæfi að í kjölfar þessa frámunalega aulagangs sem fram fór á Þingvöllum fyrr í kvöld og sýnd var á RÚV, kæmi episóda af LOST - (er annars hægt að vera hallærislegri ?- af hverju fór liðið bara ekki í Glaumbæ í Skagafirði nú eða að Galtastöðum Fram - þar er þó ekta torfbær sem hæfir vel hugsjónum þessa flokks og rúmar þar að auki örugglega allt heila settið).