Archive for May, 2006

May 30th, 2006

Ultimate Force

Posted in Óflokkað by svertla

Þessi frétt birtist í The Guardian þann 3. nóvember sl.:

Rebekah Wade, editor of the Sun, has been arrested for an alleged assault on her husband, the EastEnders actor Ross Kemp.
Ms Wade remains in custody at a police station in south London following a dispute at the couple’s home in Battersea in the early hours of this morning.
A spokeswoman for Scotland Yard said: “At 4am this morning officers attended an address in south London regarding an alleged assault. A woman was arrested for alleged assault on a man and is now in custody at a police station in south London.”

Daily Mail hafði þetta að segja:
“Kemp sustained a cut to the mouth during the 4am disturbance at their home in Battersea, south London, but is understood to have declined medical aid. Wade will face no further action for the alleged assault, police said.”

Kemp þessi sá sem leikur harðnaglann í þáttunum Ultimate Force sem sjónvarpið sýnir nú á þriðjudagskvöldum. Kempan Henno fer fyrir sérsveitinni ógurlegu sem allt sigrar, hvort sem það eru vondir kommar,IRA skúnkar, heittrúaðir flugræningjar frá Langtbortistan eða araba Al Quida pakk. Sérlega ógeðfelldur þáttur þar sem vestræn heimsvaldastefna (eins og það hét fyrir tíma alheimsvæðingar) er málið. - Svei mér þá ef bresk sjónvarpsmyndagerð rís ekki hvað hæst í þessum þátt.

Með menn eins og Kemp við stýrið má vera nokkuð ljóst að okkur er óhætt.

May 29th, 2006

Sigga litla systir mín…..

Posted in Óflokkað by svertla

Um nýja meirihlutann í Reykjavík má segja eins og í vísunni:
Sigga litla systir mín, situr úti í götu, er að láta bííííííííbbbb, fyrir tyggjóplötu.

Hvor er svo Sigga, Björn Ingi eða Vilhjálmur er ekki gott að segja.

May 29th, 2006

Framsóknarblús

Posted in Óflokkað by svertla

Framsóknarflokkurinn sem stundum kýs að kalla sig xbé er í tilvistarkreppu sem vissulega er ekki tilkominn vegna slæmra framgöngu og endalausrar aftaníhengingar við íhaldið. Nei ó nei - ekki samkvæmt afar geðillum Guðna Ágústssyni. Þetta er allt saman fjölmiðlum landsins að kenna sem að sjálfsögðu hafa sérstakt yndi af því að pönkast á framsóknarmönnum og vísa þá gjarnan í handahófskennt sleifarlagið í heilbrigðis- og félagsmálum ásamt því að draga upp neikvæða og djöfullega ímynd af flokknum sem náttúrunauðgara. Sem hann auðvitað er ekki, samkvæmt æðstapresti flokksins fyrir austan. Sá frómi maður og söfnuðurinn allur þar eystra veit betur og það vita þeirra menn í landmálapólitíkinni líka sem ávalt koma brunandi austur þegar á bjátar (og líka þegar vel gengur) til að styðja við bakið og sínu fólki. Nokkuð sem hinir flokkarnir mættu taka sér til fyrirmyndar. Það eru aðeins þessir auðvirðulegu akademikerar, listamenn og svo nokkrir fjölmiðlamenn fyrir sunnan sem ekki sjá ljósið í myrkum göngum framsóknarstefnunnar. Vei þeim!

May 24th, 2006

Ástmögur eftir pöntunum

Posted in Óflokkað by svertla

Á sýningu sem opnar í London þann 7. september nk. munu gestirnir ma. eiga kost á þessu:.

“People will also be able to build their ideal partner from a series of body parts and there will be instructions on how best to kiss and how to talk more sexily.”

Sýningin er í Amora - The Academy of Sex and Relationships sem er í Trocadero, Piccadilly.

Þá er bara að drífa sig til London í haust.

May 22nd, 2006

Sóleyjarvandi

Posted in Óflokkað by svertla

Vinstri græn ætla að halda kosninaghátíð nk. 24. maí nk. Sem er gott mál nema hvað nú á enn og aftur að dusta rykhauginn af Sóleyjarkvæðinu margspilaða og flytja það á þessari hátíð- eins og til að tryggja ákveðið antiklimax í dagskránni. Og svona til að geirnegla gjörninginn verða nokkrir af “frumflytjendunum” degnir upp úr súru til notkunar í verkinu. -
Það er semsé útséð um að þeir sem hugsanlega hefðu getað mætt á staðinn til að efla baráttuandann og láta sannfærast, svona á síðustu metrunum -þeir munu sitja heima.
Djöfull er maður búinn að fá nóg af þessu Sóleyjarkvæði - hvenær verður brainstorming í röðum vinstri manna um eitthvað annað en þetta eilífðarvæl?

May 14th, 2006

Kosningar

Posted in Óflokkað by svertla

Kosningaloforð Framsóknar og Samfylkingarinnar lýta svona út samkvæmt auglýsingum í fjölmiðlum:

- frístundakort fyrir börn
-gjaldfrjálsan leikskóla fyrir börn
-800 íbúiðir fyrir stúdenta (hver man ekki 12. þúsund framsóknarstörfin eða Eiturlyfjalaust Ísland 2000!)
-sterkara samfélag með Ingibjörgu Sólrúnu
-fleiri íbúðir fyrir ungt fólk-
-fjölskyldugreiðslur til foreldra baran 9-18 mánaða

Og Samfylkingin þakkar sér fyrir að nú HAFA tugir nýjir leikskólar verið byggðir; nú ERU KOMIN frísundaheimili í alla skóla; ofbeldi í miðborg Reykjavíkur HEFUR minnkað; níu að hverjum tíu borgarbúum ERU ÁNÆGÐIR (???) með þjóðustuna í borginni; skuldastaða borgarinnar er GLÆSILGE.

Jamm þá vitum við það.

Allir sem komnir eru yfir 35 ára aldurinn og ekki eru með hala af leikskólabörnum með reiðhjólahjálma í eftirdragi - þið vitið hvað þið eigið ekki að kjósa.

May 8th, 2006

Afmælisbörn dagsins

Posted in Óflokkað by svertla

Afmælisbörn dagsins eru Páll Hilmarsson sem nú er kominn á fertugsaldurinn og Ása sem enn nýtur þess að vera barn. Til hamingju bæði tvö.

May 8th, 2006

Afmælisbörn dagsins

Posted in Óflokkað by svertla

Afmælisbörn dagsins eru Páll Hilmarsson sem nú er kominn á fertugsaldurinn og Ása sem enn nýtur þess að vera barn. Til hamingju bæði tvö.

May 3rd, 2006

?

Posted in Óflokkað by svertla

Hvaða konur (sem kjósa VG og eru með allar sínar sellur í lagi og virkar) munu fylgja Björku Vilhelms yfir í Samfylkinguna? Nefnið þrjár!

May 2nd, 2006

Hallærislegt

Posted in Óflokkað by svertla

Eftirfarandi auglýsing er frá Framsóknarflokknum sem nú hefur skipt um nafn (sennilega til að forðast fjóslyktina og aðrar fýlur af vondum, kostnaðarsömum flopp-verkefnum sem loða nokkuð fast við það lið) - og heitir nú því frumlega nafni exbé:

„Framsóknarmenn í Reykjavík halda Bingó í Vinabæ, Skipholti 33 þriðjudaginn 2. maí milli kl. 20:00 og 22:00.
Guðni Ágústsson, landbúnaðarráðherra verður Bingóstjóri.

Frambjóðendur B - listans verða að sjálfsögðu á staðnum, góðir vinningar í boði.

Fjölmennum í Vinabæ.
Allir velkomnir.“

Jíbbíiii - vantar bara í auglýsinguna að fjölskyldu-og barnafólk sé velkomið - fái 50 þúsund kall fyrir að mæta.
Lúðar!