February 26th, 2006
Women are earning up to £1m less than men during their working life because of a “scandalous culture” of gender inequality in pay, The Independent on Sunday can reveal.
A government-commissioned inquiry is to disclose that women are being financially cheated because of a pay and recruitment system heavily biased in favour of men.
Wedding rings should come with a health warning - at least for women. New research reveals that while wedlock helps men to live longer, it shortens a woman’s life by more than a year.
OG:
Marriage helps husbands to an extra 1.7 years, but it knocks 1.4 years off the average wife’s lifespan, according to the study of more than 100,000 people across Europe.
The stress of leading dual roles as working women and homekeepers is thought to be one of the key elements that is killing off female spouses earlier than their single sisters.
Þessar upplýsingar voru í boði The Independent Online þar sem hægt er að lesa sér nánar til um efnið. - Góða skemmtun.
February 25th, 2006
“Listakonan og ekkja John Lennon….” - af hverju er ekki hægt að kynna Yoko Ono án þess að hengja hana aftaní löngu dauðan eiginmann? Eigum við kannski von á því Rúrí verði kynnt sem “listakonan og eiginkona” Páls Steingrímssonar? eða Brynhildur Ólafsdóttir “fréttakonan og barnsmóðir” Róbert Marshalls? og svo framvegis?
February 21st, 2006
Það ætti að skylda ráðamenn og pólitíkusa til að fara í strætó ca einu sinni í mánuði. Sérstaklega ætti slíkt að vera obligatoriskt fyrir vindbelginga sem gefa sig út fyrir að berjast fyrir “hamingusamri” og “fjölskylduvænni” borg. Mæli með leið 12 í þessum tilgangi og að allur spottinn verði farinn, allt frá Grafarvogi suður í Skerjafjörð.
February 12th, 2006

In days gone by, clansmen protected their land and their people, but reaching concensus on clans’ historical accuracy is a challenge.
February 12th, 2006
“Cherie Blair, eiginkona forsætisráðherra Bretlands, hvatti í dag konur í Sádí-Arabíu til að sýna þolinmæði í baráttu fyrir jafnrétti í landinu, og sagði að samfélagslegar breytingar yrðu ekki á einni nóttu. Kom þetta fram í ávarpi hennar á árlegri efnahagsráðstefnu í Jeddah í Sádí-Arabíu.”
Þessi frétt var í boði mbl.is og Cherie Blair kvennréttindafrömuðar.
February 6th, 2006
Kristján súri Hreinsson fýlupúki - er ekki í lagi heima hjá þessu fólki sem tekur þetta júróvísíon eip svona alvarlega?
February 6th, 2006
Sigrún Elsa Smáradóttir biður fólk um að styðja sig í 2. - 4. sæti Samfylkingarinnar í prófkjörinu endalausa og galopna. Stjórnmálaspekúlantar sem ég hitti í morgun gáfu ákaflega loðin og óskýr svör um hver þessi kona er né vildu þeir tala um afrek hennar. Því spyr ég: Getur einhver útskýrt eftirfarandi auglýsingu og sagt mér hvaða málefni það eru sem blessuð konan berst fyrir
“Ég vil vinna…á grunni þess sem við höfum gert…Sjálfstæðisflokkinn í vor…að enn betri Reykjavík”
February 5th, 2006
“Hún forkældist og fékk lítinn hita.”
Hér er átt við Madde prinsessu í Svíþjóð sem því miður gat ekki mætt í vinnu hjá UNICEF í NY á réttum tíma af framangreindum ástæðum.
Fréttin er í boði Fréttablaðsins.
February 3rd, 2006
Myndbirting og túlkun hugtaksins tjáningarfrelsi er margvísleg:
Í fréttum sænska ríkissjónvarpsins í gærkvöldi var sagt frá tillögum sem borgarráðið í Rotterdam í Hollandi hefur sett fram og felur í sér að banna íbúum borgarinna að tjá sig opinberlega á öðru máli en hollensku. Það þýðir að börnum að leik í frímínútum skólanna í borginni er bannað að tjá sig við félaga sína, nema náttúrulega á hollensku; að tala saman á götum úti, kaffihúsum, í búðum eða farartækjum er bannað nema sú tjáning fari fram á hollensku. Og að sjálfsögu á hið ritaða mál einnig að vera á hollensku. Enn sem komið er eru þessar tillögur ekki orðnar að reglum en ráða mátti af viðtali sænska fréttamannsins við einn af borgarráðmönnunum borgarinnar að hugur þeirra stefndi til slíks - enda að skilja á orðum mannsins að slíkt væri þeim íbúum sem ekki eru “hollenskir” í gegn (hvernig sem í ósköpunum það á nú að vera hægt í ríki með með margra alda nýlenduyfirráð á bakinu) fyrir bestu. Tillögurnar enda komnar á prent sem nokkurs konar vegvísir í átt til framtíðar.
Viðtalið sænska fréttamannsins við þennan fulltrúa borgaryfirvalda fór fram á ensku sem að sjálfsögðu gaf henni tilefni til að spyrja borgarráðsmanninn hvort þau væru þá ekki að fremja óæskilegan eða ólöglegan verknað. Kindarlegi borgarráðsmaðurinn neyddist þá til að upplýsa að slíkt bann myndi að sjálfsögðu ekki ná til allra og þannig myndu til dæmis erlendir bissnessmenn halda áfram að fá næði til að tala tungumál að eigin vali á meðan á dvöl þeirra í borginni stæði.
Annað dæmi um tjáningarfrelsi er þessi litla frétt The Guardian frá 25. janúar sl.:
Google, the world’s biggest search engine, will team up with the world’s biggest censor, China, today with a service that it hopes will make it more attractive to the country’s 110 million online users.
February 2nd, 2006
“Langlundargeðið á þrotum” - þessi orð lýsa hugrenningum og tilfinningum í garð þeirra sem spila á píanó daginn út og dainn inn án þess þó að fara raskat fram í fingrafimi og tónfærni. Það heitir á mannamáli að glamra á píanó. Þessi orð gefa líka fyrirheit um aðgerðir í garð slíks fólks. Ég vil þakka Fréttablaðinu fyrir að koma orðum að þessu fyrir mig.