Ég er enginn sérstakur konungsfjölskyldufan en sé það rétt hjá Times-online í dag að einn af prinsunum hennar Betu hafi hætt í herþjónustunni vegna þess að “being ordered to strip naked and walk through an icy river on Dartmoor with fellow recruits was, apparently, all in a days work for the young Prince who went on to pursue a television career” - þá er hann ekki eins vitlaus og ég hélt. Það verður þó að hafa það í huga að venjulegur Tom, Dick eða Harry getur ekki bara hætt í herþjónustu af því hann meika ekki móralinn og æfingarnar- alla vega ekki í landi Betu.
Times lýsir þeim prófum sem menn verða að standast til að vera “menn með mönnum:
“One test is a nine-mile speed march in 90 minutes carrying 22lb of equipment. Another involves a 30-mile march carrying 32lb with an eight-hour time limit”
Helmingur þeirra sem taka þátt í þessum ósköpum hættir áður en 30 vikna námskeiðinu lýkur segir Times. Þar sem móttóið er “A Healthy Mind In A Healthy Body” er það dálítið neyðarlegt fyrir Betuson að hafa ekki klárað. Kannski lifandi sönnun um útþynningu bláa blóðsins og allt það? Kannski það en mér finnst hann bra flottur.
Alla vega er það nokkuð ljóst að þessir sem duga - það er drepast ekki úr hræðslu, leiðindum eða eru með aðalsskírteini upp á vasann- eru þeir sem fá/verða að taka þátt í striplingaleikunum þar sem fullorðnir karlmenn, alsberir á typpinu með gúmmí eða frauðplasthlífar á handleggjunum, hlaupa um eins og hænur sem nýbúið er að höggva hausinn af - lemjandi hvorn annan. Allt í nafni karlmennskunnar. Og til að koma í veg fyrir að menn geri sér upp höfuðhögg og heilahristing þá eru nokkrir ráðnir í það að lemja þetta alsbera lið og sparka svo það sé nú örugglega á hreinu að enginn sé að feika það.
Er nema von þó að sjálfsmorðstíðni ungra breskra hermanna undir tvítugu sé mun hærri en annarra ungra karlmanna?