Stóra IKEA málið - taka II
Friday, September 30th, 2005Eins og alþjóð(ir) vita (líka Stína og Þórdís) þá er hefur slagorð IKEA gegnum tíðina verið: Billigt och bra! en ekki: AUÐVELT OG EINFALT!
Hver sagði líka að litla lífið ætti að vera ein stór Pollyönnuganga með bros á vör og blóm í haga (og auðveldar lausnir á öllu)? Eigum við ekki einmitt að feta þrönga og mjóa malarstíginn (gott ef þar er ekki bara eintómt grjót og volæði ásamt þyrnum ef ég man rétt mína trúaruppfræðslu) ? Gott að hafa þetta bakvið eyrað næst þegar haldið er á vit ævintýranna í IKEA, þangað liggur nefnilega beinn og breiður vegur en fyrr en varir er maður kominn í land hinna grýttu stíga þar sem skrúfurnar fylgja ekki með í pakkanum, leiðarvísirinn er óskiljanlegur og helvítis draslið fúnkar engan veginn né tollir saman. Þá er um að gera að bíta bara á jaxlinn (ef það er þá ekki búið að rífa hann úr manni) og brosa gegnum reiðimistrið. Og kannski nýta orkuna í að upphugsa nýtt slagorð fyrir hr. Ingvar Kamp og kó. Sem fúnkar.