Karlmenn
Wednesday, August 31st, 2005Fyrir þær konur sem eru með þurra fætur, dauðar húðfrumur, appelsínuhúð, flagnaða og líflausa húð eða önnur vandamál er um að gera að kynna sér það nýjasta í Sally Hansen vörunum. - Svona hljómar upphafið að löngum kynningartexta fyrir húðvörur sem birtist í Blaðinu í dag. Allt gott og belssað með það, en… þurfa karlmenn ekkert á þessum vörum að halda? Þornar húðin á fótunum á þeim aldrei upp? Engar dauðar húðfrumur þar? Allar alltaf sprell- lifandi og flottar? Engin appelsínuhúð eða lífleysi sem þarf að flikka upp á? Nei sennilega ekki ef marka má áðurnefnda auglýsingu. Lappir, leggir og læri á karlmönnum eru náttúrulega stinn og þokkafull og þurfa ekki á skrúbbkremum, skrúbbhönskum, glossa, gljáa og retionl að halda til að styrkja, móta og mýkja þetta fullkomna sköpunarverk Guðs! Amen.