Þýðing dagsins
‘Skyndiflóð’ á Englandi (mbl.is)
“Forseti Íslands er ekki viðstaddur ólympíumót fatlaðra né heldur Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra en Jóhanna Sigurðardóttir, félags- og tryggingamálaráðherra er heiðursgestur íslenska hópsins.”
Fréttastofa ríkisútvarpsins - RUV- er að míga á sig yfir flokkþingi repúblikana í BNA og líkt og á halelúja samkomu demókrata sem haldin var um daginn, þá er fréttamaður gerður út af örkinni til að fylgjast. Sveinn Helgason ‘rakst’ á Henry Kissinger sem tjáði Sveini að hann og McCain hafi verið vinir í þrjátíu ár og hann viti að McCain yrði frábær forseti.
Jeminn! Hvað gat maðurinn annað sagt - að hann væri þess fullviss að McCain væri gamall skíthæll sem ætti ekkert erindi í Hvítahúsið?
Ólafur F. Magnússon, fyrrverandi borgarstjóri, sparaði ekki stóru orðin í garð Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar, forseta borgarstjórnar, á borgarstjórnarfundi í gær. “Það er ekkert að marka orð þín, borgarfulltrúi Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson. Ég bíð spenntur eftir því að sjá hvaða dúsu þú færð fyrir svik þín við mig.”
Kannsi er þetta ekki eins mikið út í hött og ætla mætti því í dv.is í dag má lesa:
“Nafn Vilhjálms heyrist nú æ oftar nefnt í tengslum við starf forstjóra Landsvirkjunar sem auglýst var laust til umsóknar um síðustu helgi.”
ætla ég að leyfa mér að efast um sannleiksgildi þessarar fréttar. Trú því ekki að nein kvennahreyfing sem vill standa undir nafi setji svona fram.
“Innan kvennahreyfingarinnar í Bandaríkjunum hafa einnig margar spurningar vaknað og konur stigið fram sem segjast ekki sjá hvernig 5 barna móðir, með ungabarn með Downs-heilkenni og vanfæra táningsdóttur, geti axlað svo krefjandi og viðamikið starf sem varaforsetaembættið er. Jafnframt því er spurt, hvort kringumstæður Palin-fjölskyldunnar beri ekki með sér að ekki sé þar allt sem sýnist.”
“Í allt kostuðu ferðir Þorgerðar og maka hennar Kristjáns Arasonar, stjórnarmanns HSÍ og formanns landsliðsnefndar, og Guðmundar Árnasonar ráðuneytisstjóra og eiginkonu hans, tæpar fimm milljónir krónar. Kostnaðurinn var allur greiddur af menntamálaráðuneytinu og fólst í dagpeningum ráðherra og ráðuneytisstjóra, flugfargjöldum og hótelgistingu fyrir ráðherra, ráðuneytisstjóra og maka þeirra.
Seinni ferð ráðherra var sérlega umdeild, en ein og sér kostaði hún 2.126.681 fyrir tvær nætur, segir í Fréttablaðinu.
.2.126.681 fyrir tvær nætur! Laxveiði í boði Baugs hvað?
“Lying, regardless of who engages in it, rebounds to the detriment of the party that asks people to believe they can do better.” (Margaret Carlson, a political commentator for Bloomberg News on the Edwards affair)