google
yahoo
bing

Matarhornið: Hamborgarar

Það er fjarri mér að mæla hamborgaraáti bót, en nafnið á þessum mat þarfnast vissulega skýringar. Varla er til amerískari matur en hamborgarar en samt virðist hann vera kenndur við þýska stórborg. Hvað er eiginlega á seyði? Eru Ameríkanar kannski að slá eign sinni á evrópska matarhefð?

Skýringin er þó einfaldari og tengist þeim sið Bandaríkjamanna að nefna borgir í höfuðið á evrópskum stórborgum. Allir kannast við New York og New Jersey, en í New York-ríki er líka til borgin Hamburg. Í þeim bæ var árlega haldin matarhátið og þangað mættu Mences-bræður árið 1885 með sínar frægu svínasamlokur. Vegna vinsælda urðu þeir hins vegar uppiskroppa með svínakjöt og gripu þá til þess ráðs að nota nautakjöt í staðinn og kölluðu „Hamburg Sandwich“. Síðan var þetta nafn stytt í „Hamburger“.

Önnur skýring er sú að hamborgarar tengist borginni Hamburg ekkert heldur hafi nafnið verið apað eftir Hamborgarsteik sem er vinsæll kjötréttur sem kom frá Þýskalandi.

Elsti bandaríski hamborgarastaðurinn er Louis’ Lunch sem var stofnaður af Louis Lassen í Connectictut 1895 og var þá þegar með hamborgara á matseðlinum. Þessir hamborgarar voru hins vegar öðru vísi en tíðkast núna, einfaldlega ristað brauð með steik á milli. Þannig hamborgara mun ennþá vera hægt að kaupa á þessum veitingastað.

Á þessum tíma var Oscar Weber Bilby í Oklahoma farinn að nota hamborgarabrauð í steikarsamlokuna sína. Vilja menn í Oklhoma meina að Oscar hafi þar með fundið upp „the hamburger as we know it“ árið 1891. Á hinn bóginn virðist hann ekki hafa farið að selja hamborgara fyrr en löngu síðar, þessir fyrstu voru bara til heimabrúks. Sá sem fyrstur seldi hamborgara með þannig brauði var Bert W. Gary í Clarinda, Iowa, líkast til árið 1902.

Á heimssýningunni í Saint Louis 1904 slógu hamborgarar í gegn. Þar seldi maður að nafni Fletch Davis hamborgara að hætti Garys og hlaut varan athygli í fjölmiðla í fyrsta sinn.

Má því telja að þróunarskeið hamborgaranna sé 1885-1904. Þeir öðluðust svo annað líf sem skyndibiti þegar veitingastaður Dick og Mac McDonald í Kaliforníu bjó til hraðafgreiðslu á veitingastöðum sínum sem kallaðist „Speedee Service System“ árið 1948. En það er önnur saga.

3 Responses to “Matarhornið: Hamborgarar”

  1. hildigunnur Says:

    Það er hreinlega ekkert að því að borða hamborgara, sérstaklega ef maður sleppir mæónessósunni og notar salsasósu í staðinn - bara brauð, kjöt, grænmeti og mögulega ostur. Þannig að það er allt í fína að mæla hamborgaraáti bót.

    Fróðlegur pistill annars atarna. Minn fyrrverandi bandaríski kærasti og hans fjölskylda kalla nautahakk hamburger, væntanlega er það alsiða í New England.

  2. Torfi Says:

    þetta var fróðlegt og ég bíð spenntur eftir hinni sögunni um þróun „Speedee Service System“

  3. Rósa Says:

    Ég hef ákveðið að kommenta hér eingöngu ef fjallað er um lyftingar eða djönkmat. Þetta var áhugaverður pistill, Oscar Weber Bilby var greinilega maður sem hugsaði útfyrir rammann! Nú sendi þér áskorun um að upplýsa lesendur þína um hver þessi ofursti hjá KFC sé (káeffsésé).

Leave a Reply