google
yahoo
bing

Stóriðjufylkingin

Árið 2003 voru tveir Samfylkingarmenn á þingi á móti Kárahnjúkavirkjun. Ekki var mikil reisn yfir flokknum þá.  

Síðan þá hefur það gerst að flokkurinn reyndi með markvissum hætti að markaðssetja sig sem umhverfisflokk, m.a. með plagginu „Fagra Ísland“. Og núna fyrir fáeinum mánuðum rann eitt stykki umhverfisflokkur inn í Samfylkinguna - Íslandshreyfing Ómars Ragnarssonar.

Hver er niðurstaðan. Núna eru einn og hálfur samfylkingarmaður á móti áframhaldandi stóriðjustefnu. Lengi getur vont versnað!

Leave a Reply