Enn við sama heygarðshornið
Þeir íslensku fjölmiðlar sem árum saman sungu útrásinni lof og prís er nú komnir í bullandi stjórnarandstöðu - þar eru þó sömu menn í brúnni og áður en munurinn er sá að breytt hefur verið um stjórnarstefnu frá þeim tíma þegar þjóðarskútunni var siglt í strand.
Í upphafi hrunsins var nokkuð rætt um ábyrgð fjölmiðla á ástandinu en sú umræða náði skammt. Þess vegna sitja ennþá sömu menn á ritstjórnarstólum innan íslensku pressunnar og gerðu það fyrir hrun.
Nú ætti í sjálfu sér að fagna því að fjölmiðlar hafi fundið hjá sér gagnrýnistaugina. Mig minnir að Jón Kaldal hafi vísað til fyrri gagnrýnisleysis Fréttablaðsins á stjórnvöld þegar hann færði rök fyrir því að núna myndi blaðið reka kröftuga stjórnarandstöðu. En þarf samt ekki gagnrýnin að byrja í manns eigin ranni? Og beinast kannski með markvissum hætti að fyrri leiðurum blaðanna?
Gallinn er nefnilega sá að ekkert hefur í rauninni breyst hjá blöðunum. Þar sitja hægrisinnaðir ritstjórar áfram og ausa fúkyrðum yfir vinstrimenn. Í stað gagnrýnislausrar tilbeiðslu á stjórnvöldum er nú komin ómálefnaleg og rakalaus stjórnarandstaða. Skoðið bara nýlega leiðara eftir Þorstein Pálsson og Reyni Traustason. Þar ræður ríkjum samhengislaus orðavaðall sem mætti draga saman í einni setningu: Ég hata VG.
March 25th, 2009 at 13:41
Það er varla finnandi hægri þenkjandi fjölmiðill á Íslandi. Það er Samfylkingarblaður sem ræður ríkjum á fjölmiðlum landsins og það er þess vegna sem þeir hata VG : )
March 25th, 2009 at 14:36
Þú gleymir hluta setningarinnar ….. OG ELSKA Davíð Oddsson
March 25th, 2009 at 21:07
Yfirmenn á öllum íslenskum fjölmiðlum eru hægrimenn en sumir óbreyttir eru vinstri menn. Þetta hentar valdinu því þá geta þeir alltaf sagt: vinstri menn eiga fjölmiðlaumfjöllunina á Íslandi.
Áður var líka sagt að vinstri menn ættu menninguna, en frjálshyggjan er búin að drepa allt núna en heldur áfram að þusa gamla bullið. Stuttbuxnadrengirnir eru eins og höfuðlausar hænur, æpandi útum allt um ekki neitt.
March 26th, 2009 at 13:40
Raunar mætti einnig bæta Reykjavíkubréfi Moggans frá því um helgina í þennan hóp og eru þá fjölmiðlarnir þrír sem toga allir í sömu áttina, til hægri.