Staðan er skýr - líka ábyrgðin

Það blasir við að Samfylkingin gæti myndað nýja stjórn á morgun; stjórn sem hefði það meginmarkmið að boða til kosninga vorið 2009 og láta kjósendur móta framtíðarstefnu Íslands í efnahagsmálum.  

Spuni Marðar Árnasonar og fleiri um að VG sé að halla sér Sjálfstæðisflokknum er frekar ótrúverðugur þótt ekki væri nema fyrir þær sakir að formaður VG er beinlínis búinn að lýsa því yfir að flokkurinn fari ekki í stjórn núna nema til þess að halda kosningar sem fyrst.

Þannig að ef Samfylkingin slítur stjórnarsamstarfinu núna er framhaldið frekar borðleggjandi, það verður mynduð ríkisstjórn um að halda kosningar.

Um framkvæmdina á því strandar ekki á neinum nema Samfylkingunni sem núna er í ríkisstjórn með Sjálfstæðisflokknum.

One Response to “Staðan er skýr - líka ábyrgðin”

  1. Jón Yngvi Jóhannsson Says:

    Heyr, heyr

Leave a Reply