Sömu gömlu vinnubrögðin

VG hefur lagt fram frumvarp um afnám eftirlaunalaganna frá 2003.

Núna boðar ríkisstjórnin annað frumvarp um sama efni sem væntanlega gengur mun skemur. Af hverju vænti ég þess? Vegna þess að Geir Haarde er búinn að segja það.

Frumvarp VG verður saltað í nefnd með sama hætti og frumvarp Valgerðar Bjarnadóttur í fyrra.

Ef stjórnarandstaðan styður ekki stjórnarfrumvarpið verður hún sökuð um að vilja ekki breyta eftirlaunalögunum.

Enginn fjölmiðill mun spyrja: Hvers vegna gat stjórnarmeirihlutinn ekki bara tekið frumvarp VG til efnislegrar umræðu og breytt því sem hann vildi breyta? Eða þá frumvarp Valgerðar frá því í fyrra?

2 Responses to “Sömu gömlu vinnubrögðin”

  1. Toggi Says:

    Flott hjá VG. Sjáum hvernig stjórnarfrumvarpið verður.

    Umræðan um þetta mál í samfélaginu ætti allavega að tryggja það að spuni verður gegnsær (bjartsýni, ég veit).

    Vinnubrögðin eru auðvitað glórulaus - þetta að frumvörp allra annarra en stjórnarinnar lendi neðst í bunkanum, eða þá í pappírstætaranum.

    Ein spurning samt: Studdi VG frumvarp Valgerðar?

  2. Sverrir Says:

    Ja, frumvarp Valgerðar var svæft í nefnd í fyrra áður en þingmönnum gæfist einu sinni færi á að ræða það. Birgir Ármannsson, nefndarformaður, útskýrði þau vinnibrögð gaumgæfilega fyrir alþjóð á sínum tíma.

    Kannski er VG að stela „thunderinu“ af Valgerði með því að leggja fram glænýtt frumvarp. Hún var hins vegar varaþingmaður og ekki inni á þingi núna. Enginn annarra flutningsmanna virðist hafa áhuga á því að leggja hennar mál fram aftur (enn sem komið er). Ég reikna samt með því að þeir styðji það efnislega áfram.

    Niðurstaða mín er sú að almennur stjórnarþingmaður virðist eiga nánast jafn erfitt með að fá í gegn mál og stjórnarandstaðan. Sem segir auðvitað sína sögu.

Leave a Reply