Lög sem stangast á við stjórnarskrá

Virtur hæstaréttarlögmaður heldur því fram að fimm daga gömul lög um fjármálafyrirtæki stangist á við stjórnarskrá. Þetta er í fullkomnu samræmi við nefndarálit minni hluta viðskiptanefndar þegar málið var tekið til afgreiðslu. Þar segir m.a.:

„Með því er tekinn af stjórnarskrárbundinn réttur einstaklinga og lögaðila til að leita til dómstóla um ágreining auk annarra frávika.“

Enn fremur segir í minnihlutaálitinu:

„Það er álit minni hlutans að umrætt frumvarp með áorðnum breytingum stangist á við tilgang laga nr. 125/2008. Lögunum var ekki ætlað að halda lífi í hinum gjaldþrota bönkum eins og nú virðist raunin. Enn skal ítrekað að unnt er að ná öllum þeim markmiðum greiðslustöðvunar og nauðasamninga með gjaldþrotaferli og gott betur. Virðist sem hagsmunir hinna erlendu kröfuhafa ráði för. Þá er enn allt á huldu um endanleg markmið ríkisstjórnarinnar og Fjármálaeftirlitsins varðandi framtíðarskipan bankamála á Íslandi. Við blasir sú stórfellda hætta að veikburða og bútasaumuðar skyndilausnir meiri hlutans verði vopnabúr dómsmála. Í fyrsta lagi er alls endis óvíst hvort lagaskilyrðum fyrir greiðslustöðvun verði fullnægt, í öðrum lagi mæla lög um fjármálafyrirtæki enn fyrir um skyldu Fjármálaeftirlitsins til að gera kröfu um gjaldþrotaskipti og í þriðja lagi má búast við hatrömmum málaferlum frá hendi erlendra sem innlendra kröfuhafa þar sem þess verður krafist að hugsanlegri greiðslustöðvun verði hnekkt. Frumvarpið með áorðnum breytingum er enn vanhugsað og ófaglegt og það sem verra er, felur í sér skerðingu á mannréttindum. Þá er lagasmíðin í hróplegri andstöðu við Handbók um undirbúning og frágang lagafrumvarpa. Verið er að feta vafasamar brautir sem kunna að valda stórfelldu tjóni og kippa grundvelli neyðarlaganna í burt. Hér er réttarfarslegt slys einnig í uppsiglingu.“

Leave a Reply