Siðlaus hernaður
Árið 2007 þrefaldaðist fjöldi óbreyttra borgara sem létust í loftárásum NATO í Afganistan. Svar hernaðarbandalagsins: Fjölga loftárásum.
Mannfll í röðum óbreyttra borgara er ekki ófyrirséð hliðarafurð af svona lofthernaði. Þvert á móti er margsannað að það er óhjákvæmileg afleiðing. Gallinn er bara sá að Vesturlöndum er nákvæmlega sama þótt konur og börn séu fórnarlömb hernaðar þeirra í Afganistan. Þegar einn hermaður fellur er næg umfjöllun um það í blöðunum en þegar sprengjum er ringt yfir venjulegt fólk í Afganistan eru tuggnar upp fréttatilkynningar frá NATO-herjunum það sem fólkið er kallað „vígamenn“ og „Talibanar“. Það er ekki nema þegar heimamenn ná eyrum mannréttindasamtaka og afgönsku ríkisstjórnarinnar að þessi morð á óbreyttum borgurum eru tekin á dagskrá, en niðurstaðan er alltaf sú sama. NATO-herirnir skipa nefnd til að gera skýrslu um málið og reyna að salta fréttir af því í nokkrar vikur þangað til drápin hætta að vera harmleikur og verða að tölfræði.
Þegar svo allt er að fara úr böndunum í Afganistan hafa viðbrögð Bandaríkjanna og fylgiríkja þeirra jafnan verið hin sömu: Ráðast inn í annað land. Árið 2003 var það Írak, núna er það Pakistan.