Forseti þings en ekki þjóðar

Einu sinni voru einu konurnar sem hlutu frama í þriðja heiminum ekkjur fyrrverandi ráðamanna. Núna er jafnréttið meira og karlarnir komast til áhrifa út á látnar eiginkonur. Þetta gildir um Asif Zardari sem núna er orðinn forseti Pakistan enda þótt hann sé alls ekki sá maður sem nýtur mests stuðnings þjóðarinnar. Í frétt RÚV er þetta orðað svo: 

„Í Pakistan er forsetinn kosinn af þjóðþinginu og fjórum héraðsþingum og var Zardari kosinn með miklum meirihluta atkvæða. Samkvæmt Gallup-könnun nýtur Zardari hins vegar aðeins stuðnings um fjórðungs Pakistana í embætti forseta.“

Zardari er alræmdur fyrir spillingu og hann virðist ekkert sérstaklega heiðarlegur í viðskiptum við aðra stjórnmálamenn. A.m.k. sakar Nawaz Sharif, sem líklega er vinsælasti stjórnmálamaðurinn í Pakistan, hann um að hafa svikið heiðursmannasamkomulag um að hvorugur þeirra ætti að sækjast eftir forsetaembættinu.

Leave a Reply