Fólkið sem kaus vitlaust

Í einu landi innan Evrópusambandsins fékk þjóðin að kjósa um hvernig samrunaferlið ætti að ganga fyrir sig. Núna keppast stjórnmálamenn við að skamma þessa þjóð fyrir að kjósa vitlaust. Þar sem nú eru fjórir dagar í þjóðhátíð datt mér í hug þetta ljóð:

Eftir uppreisnina 17. júní
lét formaður Rithöfundasambandsins
dreifa flugritum í Stalinallee.
Á þeim gat að lesa að þjóðin
hefði fyrirgert trausti ríkisstjórnarinnar
og gæti því aðeins endurheimt það
að hún legði á sig tvöfalda vinnu.
En væri ekki nær að stjórnin
veitti þjóðinni lausn og
veldi sér aðra?

Bertholt Brecht (þýð. Þorsteinn Þotsteinsson)

One Response to “Fólkið sem kaus vitlaust”

  1. Guðmundur Brynjólfsson Says:

    Vel til fundið Sverrir.
    En Írarnir verða ekki látnir í friði með þessa niðustöðu. Þarna verður kosið aftur og aftur uns “rétt” niðurstaða fæst - það er lagið sem þeir í Brussel hafa.

Leave a Reply