Kistan, bannfæringar og Indland
Kistan fer vel af stað í upphafi vetrar með ágætum pistli Viðars Þorsteinssonar. Í því tilefni hef ég endurvakið tengil á vefritið. Pistlar á Kistunni eru yfirleitt ágætir þegar þeir koma, á ca. 2 mánaða fresti.
Að öðru leyti er menningarumræðan á Íslandi ennþá stödd á 6. áratugnum nema að þá var hún á aðeins hærra plani. Kannski ætti að halda annan fund um hvort atómljóð eigi rétt á sér?
Ég mæli með þessum fundi á morgun.
Um þessar mundir er ég að lesa þessa bók um sögu Indlands seinustu 60 ára. Hún er ágætis tilbreyting frá fyrri bókum um sögu Indlands sem ég hef lesið, því að þeim lýkur yfirleitt 1947. Ég er frekar ánægður með bókina enn sem komið er, svona fyrstu 300 síðurnar.
September 26th, 2007 at 18:54
Mér finnst margt í þessum pistli bjánalegt. Til dæmis þegar hann segir að AHA segi að “það sé í lagi að fyrirlíta svarta menn”. Það er ekkert vit í því. Einnig þegar hann segir að aðstandendur bókmenntahátíðar hafi lagt “sitt af mörkum til þess að gera annars góða sambúð menningarhópa hér á landi verri en ella.” Væri ekki alveg eins hægt að segja að í hvert skipti sem einhver gagnrýnir Bandaríkin þá sé verið að gera sambúð menningarhópa verri? Má í raun nokkuð gagnrýna nokkurn skapaðan hlut? Það gæti jú gert sambúð hópa verri.
Annars þá sakna ég þess að þessir sem eru að fríka út vegna AHA hefðu eitthvað tjáð sig um Maryam Namazie en það hefði líka verið ómögulegt að afskrifa hana sem hægrisinna.
September 27th, 2007 at 10:48
Ja, pistill Viðars fjallar um bókmenntahátíðina og Maryam Namazie var ekki á henni. Ég veit ekki heldur hvort hún hefur sagt að vestræn menning sé best í heimi með sama hætti og AHA.
Sjálfur legg ég þessar konur ekki að jöfnu og býst við að það sama gildi um fleiri þannig að mér finnst ekki nauðsynlegt að minnast á báðar þegar önnur er gagnrýnd.