Bretland 3
Ég er kominn heim frá Bretlandi. Ferðalagið var langt og strangt en líka skemmtilegt.
Í gærkvöldi stóð ég á Georgstorgi í Glasgow og horfði á styttuna af Walter Scott. Það var góð tilfinning að vera á heimleið en líka að koma til Glasgow í fyrsta sinn í 12 ár. Einu sinni var ég þar mun tíðari gestur.