google
yahoo
bing

Bretland 2

Skotar hafa eigin peninga sem munu vera jafngildir hinum ensku, en myntin er eins.

4 Responses to “Bretland 2”

  1. Stefán Says:

    Nei, málið er að seðlaútgáfurétturinn í Bretlandi er ekki bundinn við einn Seðlabanka. Nokkrir bankar í Skotlandi nýta réttinn til að prenta peningaseðla og 1-2 á Norður-Írlandi sömuleiðis. Sunnan landamæranna gera bankastofnanir það hins vegar ekki.

    Allir eru þessir peningaseðlar jafngildir og þú átt að geta greitt með pundum frá t.d. Strathclyde Bank eða Royal Bank of Scotland í öllu Bretlandi. Það er hins vegar hætt við að tauaveiklaðir afgreiðslumenn myndu neita að taka við þeim á stöku stað.

  2. Gneistinn » Færeyskar krónur Says:

    […] Færeyskar krónur Svo ég skipti mér af því áhugaverðasta sem er að gerast á blogginu í dag þá hafa Færeyjingar sína eigin krónu. Hún er jafngild þeirri dönsku. Ég fékk nokkra slíka seðla með mér til Færeyja síðast en notaði reyndar aðallega danskar þar. Þetta skrifaði Óli Gneisti. Flokkun Almennt. Svaraðu […]

  3. Eyja Says:

    Klukk!

  4. Flosi Þorgeirsson Says:

    Það munu þá vera ansi margir taugaveiklaðir í Englandi, Stefán. Ég hef aldrei getað notað skosk pund í Englandi og heyrði ég það í Skotlandi að það væri nær ómögulegt sunnan Hadríansmúrs.
    Til mikillar gleði fúlsaði afgreiðslukona í Leifsstöð ekki við Skotagullinu.

Leave a Reply