Kristófer Kólumbus
Árið 1492 stýrði ítalskur sæfari fyrsta leiðangri Evrópumanna til Ameríku. Meðal eyjanna sem Kólumbus kom til var Kúba. Þar lagði hann í höfn í Guantanamoflóa.
Undanfarin fimm ár hefur sérkennileg starfsemi átt sér stað í Guantanamo, rekstur fangabúða í trássi við alþjóðalög og grundvallarhugmyndir um mannréttindi. Heimsbyggðin lítur undan því að í alþjóðasamfélaginu gildir einungis hnefarétturinn.
Enginn á skilið að lúta hnefarétti. Nema kannski Moggabloggið.
January 10th, 2007 at 18:15
Það er ótugtararskapur að vera alltaf að gera lítið úr öðrum - hinum!
January 10th, 2007 at 18:24
Ég minni lesendur á að þessi síða er ekki vettvangur fyrir stóryrði í garð mín eða annarra. Öðru máli gegnir um ópersónuleg fyrirbæri eins og Moggabloggið. Það má vera á móti því án þess að vera á móti einstaklingum sem eiga Moggabloggsíður, alveg eins og hægt er að vera á móti álverum án þess að vera á móti fólki sem vinnur í þeim eða á móti Bónus án þess að hatast við alla sem vinna í Bónus. Moggabloggið er bákn sem breiðir sig út yfir allt eins og hver önnur tískubóla og býr til leiðindastaðal fyrir hinn anarkíska bloggheim. Þar að auki get ég ekki lesið allt á Moggabloggsíðum í tölvunni heima - út af einhverjum fídusum. Þess vegna er ég á móti því eins og hverju öðru þjóðfélagsmeini án þess að ég þurfi jafnframt að vera á móti ágætisfólki eins og Sigurði sem skrifar um veður og annað merkilegt á svoleiðis síður. Megi Moggabloggið aldrei þrífast!
January 10th, 2007 at 18:53
Þú segir að Magnús Magnússon hefði aldrei lagst svo lágt að fara á Moggabloggið. Það þýðir að þeir sem blogga á Moggablogginu eru að leggjast lágt sem persónur. Nöfn þeirra koma fram á blogginu. Þú hefur eiginlega sjálfur gert þetta persónulegt. Þau stóryrði þín vöktu upp mín stóryrði. Og þið ættuð bara að hætta þessu. Er það svo mikið mál?
Þvi það fer ekki á milli mála að þið eruð að búa til aðgreininu, vanþóknun, fordæmingu á öðrum. Þeir sem leggjast svo lágt…
Og hér hætti ég nú alveg og bið þig og þína vel að þrífast.
January 10th, 2007 at 19:08
Jahérna.
January 12th, 2007 at 2:35
Moggabloggið hefur einn mjög leiðan galla. Hann er sá að fólk sem er ekki á Moggablogginu getur ekki með einföldu móti skilið eftir slóð að sínu bloggi í undirskrift. Þannig brýtur Moggabloggið upp samfélag bloggara, rétt eins og Microsoft brýtur upp samfélag samhæfninnar í tölvuheiminum.
Megi Moggabloggið og Microsoft saman ganga fyrir ætternisstapa!