google
yahoo
bing

Frétt dagsins

Það hlaut að koma að þessu:

„Hjörleifur Hallgríms, fyrrverandi ritstjóri Vikudags á Akureyri, býðst til að leggja fram tvær miljónir króna í hússjóð framsóknarfélaganna í bænum verði hann kosinn í 3. sætið á framboðslista flokksins í Norðausturkjördæmi fyrir komandi alþingiskosningar. … Hjörleifur hafnar því alfarið að um sé að ræða mútur(leturbr. mín).“ Þetta kom fram á fréttavef RÚV.

Miðað við aðfarir fólks í prófkjörsbaráttu er þetta rökrétt skref, en það næsta hlýtur að vera að sætum á framboðslistum verði úthlutað með uppboði.

Að öðru: Herferð okkar Stefáns gegn Moggablogginu hefur vakið mikla athygli og valdið taugatitringi í bloggheimum, enda hlýtur það að teljast saga til næsta bæjar að tveir einstaklingar nái að leggja fjölmennasta netsamfélag landsins í einelti. Er Moggabloggið óðum að verða kúgaðasti meirihlutahópur landsins - að Þjóðkirkjunni frátaldri.

Ég blogga raunar líka út frá fréttum - svo lengi sem þær eru ekki á mbl.is. Megi Moggabloggið fá skjótan og maklegan endi.

3 Responses to “Frétt dagsins”

  1. AV Says:

    Kvitt;)bandalagið lætur ekki að sér hæða.

  2. Fórnarlömb hinna fáu [ Mitt eigið net Blog Archive ] Says:

    […] Sverrir Jakobsson hefur lagst með Stefáni Pálssyni (eins gott að klára þessa setningu) á þær verðugu árar að koma Moggablogginu um kring með formælingum í lok hverrar færslu. Nokkrir þarlendir bloggfoglar hafa hnýtt í þetta athæfi og það finnst Sverri fyndið … enda hlýtur það að teljast saga til næsta bæjar að tveir einstaklingar nái að leggja fjölmennasta netsamfélag landsins í einelti. Er Moggabloggið óðum að verða kúgaðasti meirihlutahópur landsins - að Þjóðkirkjunni frátaldri. […]

  3. hildigunnur Says:

    já, best að ég tengi líka á þig á minni moggabloggsíðu