Pólverjar standa sig - í bili

July 4th, 2008

Þetta eru góð tíðindi. Almenningur í Póllandi og Tékklandi hefur engan áhuga á þessum „varnarskildi“ sem reynt hefur verið að pína upp á þessar þjóðir. Á hinn bóginn má efast um heilindi pólskra stjórnvalda sem eru líklega einungis að fara fram á meiri peninga fyrir að hýsa þennan óskapnað.

Millilending

July 3rd, 2008

Íslensk stjórnvöld ganga ansi langt í viðleitni sinni til að hrekja hvern einasta flóttamann sem hingað kemur úr landi.

Núna á að vísa burt manni sem á fjölskyldu hér á landi vegna þess að flugvélin sem hann kom á til Íslands millilenti á leiðinni. Flóttamenn verða sem sagt að sýna Íslendingum þá tilitssemi að taka beint flug hingað.

Hvað kallar maður svona pólitík?

Góðar fréttir frá Evrópusambandinu

July 2nd, 2008

Það væru mjög góð tíðindi ef þetta mál næði fram að ganga. Í gagnrýnislausri umræðu um Evrópusambandið hérlendis hefur lítið farið fyrir greiningu á sumum veikleikum, s.s. skorti á sameiginlegri heilsugæslu.

Á sama tíma koma fréttir frá Bandaríkjunum þar sem í sumum ríkjum er reynt að koma á heilsugæslu fyrir alla.

Þessar fréttir ættu að vera í umræðunni á Íslandi þar sem ríkisstjórnin er að reyna að breyta almennri heilsugæslu til hins verra.

Frjálsar kosningar í Zimbabwe

June 30th, 2008

Forsætisráðherra Kenju vill láta reka Zimbabwe úr Afríkusambandinu vegna þess að kosningar þar voru ekki frjálsar.

Með fullri virðingu fyrir þessu sjónarmiði þá hefur það ekki beinlínis verið skilyrði fyrir aðild að Afríkusambandinu að halda frjálsar kosningar. Á hinn bóginn má hugsa sér að leiðtogar margra ríkja í Afríku geti nú leiðbeint Mugabe með góðu fordæmi og boðað til frjálsra kosninga. Slíkt yrði þrjótinum eflaust holl lexía, en af einhverjum ástæðum er maður efins um að hún sé í boði.

Kjarnorkuvísindamaðurinn Hans Kristensen upplýsir að Bandaríkin hafi flutt kjarnorkuvopn sín frá Bretlandi. Þessi frétt kemur frá óháðum aðila því að hvorki Bandaríkin né Bretland upplýsa Alþjóðakjarnorkumálastofnunina um svona hluti. Sem auðvitað er athyglisvert í ljósi ítrekaðra krafna þessara ríkja um að Íran fari að óskum stofnunarinnar í einu og öllu. Tvískinnungurinn er víðar en í Afríku.

Strandaglópur

June 27th, 2008

Flugumferðarstjórar eru búnir að semja þannig að ekki er mikil hætta á að íslenskir flugfarþegar verði strandaglópar.

Bandarískir hermenn eru hins vegar strandaglópar í Írak því að Bush-ríkisstjórnin ætlar sér að gera írak að amerískri nýlendu til frambúðar. Ég var í Bandaríkjunum á dögunum og sá rit Patricks Cockburns víða í bókabúðum. Vonandi nær hann að fræða þjóð sína nóg til þess að þessari stefnu verði snúið við.

Keltarnir unnu

June 18th, 2008

Boston Celtics eru búnir að vinna NBA-titilinn í körfubolta. Nafn þeirra er tilvísun í írskan uppruna fjölmargra á þeim slóðum en kannski líka í eldra körfuboltalið, The Original Celtics. Hinir upprunalegu Keltar voru sigursælir í keppninni sem var fyrirrennari NBA, American Basketball League. Þeir spiluðu raunar undir ýmsum öðrum nöfnum, s.s. Brooklyn Celtics og New York Celtics.

Nafn andstæðinga þeirra, Los Angeles Lakers, er ekki jafn gegnstætt þar sem fátt er um stöðuvötn í kringum heimaborg þeirra. Útskýringin á því er raunar einföld. Liðið flutti til Los Angeles frá Minneapolis árið 1960 en Minnesota er oft kallað ríki hinna 10.000 vatna.

Er eitthvað gagn af ísbjörnum?

June 17th, 2008

Einu sinni voru ísbirnir gjaldmiðill. Auðunn vestfirski gaf Noregskonungi ísbjörn.

Nordisk Film notar ísbjörn sem vörumerki. Kók notar þá í auglýsingu. Nonni skrifaði smásögu um ísbirni.

Og núna eru ísbirnir sem hafa villst frá heimkynnum sínum orðnir að allsherjar skemmtiefni fyrir Íslendinga. Líklega endar þetta með kvikmyndinni „Free Willy the Polar Bear“, framleiddri af Björgúlfi yngra.

Útskrift

June 15th, 2008

Fallega konan mín útskrifaðist með BA-próf frá Háskóla Íslands í dag (eða gær, öllu heldur). Ég er að springa af stolti. Meðal þeirra þúsunda sem útskrifuðust á þessum degi þá er hún einstök.

Fólkið sem kaus vitlaust

June 13th, 2008

Í einu landi innan Evrópusambandsins fékk þjóðin að kjósa um hvernig samrunaferlið ætti að ganga fyrir sig. Núna keppast stjórnmálamenn við að skamma þessa þjóð fyrir að kjósa vitlaust. Þar sem nú eru fjórir dagar í þjóðhátíð datt mér í hug þetta ljóð:

Eftir uppreisnina 17. júní
lét formaður Rithöfundasambandsins
dreifa flugritum í Stalinallee.
Á þeim gat að lesa að þjóðin
hefði fyrirgert trausti ríkisstjórnarinnar
og gæti því aðeins endurheimt það
að hún legði á sig tvöfalda vinnu.
En væri ekki nær að stjórnin
veitti þjóðinni lausn og
veldi sér aðra?

Bertholt Brecht (þýð. Þorsteinn Þotsteinsson)

Horft til háskólans á Amager

June 13th, 2008

Gunløgsgade