February 24th, 2009
Jæja, ég hafði mig loks í það að skrifa grein - og fékk hana birta á Smugunni. Ég held að það sé engum ofsögum sagt að þetta sé brýnasta öryggismál þjóðarinnar, ásamt því náttúrulega að halda Sjöllunum utan stjórnarráðsins.
Og reyndar fara þessi tvö mál saman. Ef Sjallarnir eru úti eru meiri líkur á að kjarnorkan verði úti.
Posted in Uncategorized | No Comments »
February 23rd, 2009
Ekki veit ég hvað varð um fagurgræna (alls ekki framsóknargræna) hausinn. Ég sakna hans svolítið.
* * *
Það er gósentíð hjá fundafíklum og mun væntanlega vera vel fram á vorið.
Á miðvikudagskvöldið kl. 20 - 22 verður fyrsti fundur í fundaröðinni “Verjum velferðina!” sem haldinn er af Öryrkjabandalagi Íslands og Landssamtökunum Þroskahjálp í aðdraganda alþingiskosninga 2009. Fundurinn sem haldinn verður á Grand Hótel Reykjavík í Sigtúni ber yfirskriftina Heilbrigðismál í kreppu - hvað er framundan?
Dagskráin er einhvernvegin svona:
Frummælendur á fundinum:
* Ögmundur Jónasson heilbrigðisráðherra
* Guðlaugur Þór Þórðarson alþingismaður
* Matthías Halldórsson landlæknir
Til umræðu verður meðal annars:
* Gjaldtaka í heilbrigðiskerfinu
* Þak á læknis- og lyfjakostnaði
* Forgangsröðun í heilbrigðismálum
Pallborðsumræður að loknum framsögum.
Þátttakendur í pallborði verða frummælendur ásamt fulltrúum annarra
stjórnmálaflokka, Öryrkjabandalagsins og Þroskahjálpar.
Fundurinn er öllum opinn. Táknmálstúlkar verða á staðnum.
Jamm, ég ætla að mæta - enda einhverskonar fundafíkill.
Posted in Uncategorized | No Comments »
February 23rd, 2009
Samtök hernaðarandstæðinga efna til opins félagsfundar mánudagskvöldið 23. febrúar kl. 20 í Friðarhúsi, Njálsgötu 89.
Gestur fundarins verður Árni Þór Sigurðsson, formaður utanríkismálanefndar Alþingis.
Í tilkynningu frá SHA segir:
Það er margt að gerast á sviði hernaðar- og afvopnunarmála sem Íslendingar ættu að láta sig varða. Á dögunum var kynnt skýrsla Thorvalds Stoltenbergs með tillögum um norrænt hernaðarsamstarf. Tillögur liggja fyrir Nató um stofnun fastahers. Árekstur kjarnorkukafbáta í Atlantshafi hefur rifjað upp gamlar kröfur um kjarnorkufriðlýsingu. Og deilt er um stöðu og framtíðarhlutverk Varnarmálastofnunar.
Rætt verður um þessi mál og fleiri á fundinum. Allir velkomnir
Ég er sérlega áhugasöm um að fá að vita meira um framtíð Varnarmálastofnunnar. Forsíðufrétt Fréttablaðsins, þar sem fram kemur að Utanríkisráðherra sé með Varnarmálastofnun til rækilegrar endurskoðunar og að hún verði kannski bara lögð niður vekur óneitanlega hjá manni ýmsar vonir.
Kona leyfir sér þó bara hæfilega bjartsýni en það má nú láta sig dreyma - og mæta á fundi og ræða málin. Sjáumst!
Posted in Uncategorized | No Comments »
February 21st, 2009
Ólína er ekki dóttir pabba síns fyrir ekki neitt. Hún hefur bitið það í sig að spurningakeppnir séu hið skemmtilegasta sjónvarpsefni. Ekki held ég þó að hún fatti mikið út á hvað þær ganga.
Posted in Uncategorized | No Comments »
February 20th, 2009
Heimilið að Mánagötu 24 gerðist fyrir skemmstu áskrifandi að fjölvarpinu, aðallega í þeim tilgangi að geta horft á skandínavísku stöðvarnar. Þetta uppátæki hefur haft verulega óvænt áhrif á sjónvarpsáhorf okkar hjóna. Nú heyrir hreinlega til undantekningar að sjónvarpið sé í gangi eftir klukkan níu á kvöldin. Stundum reyndar munum við eftir að kveikja á seinni fréttunum ruv.
Á tveimur vikum hef ég horft á einn sænskan sakamálaþátt ár DR1 og hálfan Hjärnstorm þátt á SVT1. Og engan þátt á ruv, að barnaefni, fréttum og Afríku sem heillar undanskilinni en það er að verða hefð hjá okkur mæðgum að horfa á þann þátt saman.
Í stað sjónvarpsglápsins hefur þeim mun meira verið hangið í tölvunni og reyndar nokkrar glæpasögur verið lesnar. Spennandi verður að sjá hvort þetta sjónvarpsmynstur er komið til að vera.
Posted in Uncategorized | No Comments »
July 15th, 2008
Ég skil ekkert í þvottafjallinu að brjóta sig ekki saman og hunskast inn í skáp.
Posted in Uncategorized | 1 Comment »
June 11th, 2008
Eftir dæmalaust hangs morgunsins erum við Erving nú sest út í sólina og mun hann eiga athygli mína óskipta þar til ég sæki barnið í leikskólann.
Það vill þó til að í öllu hangsinu í morgun hitti ég fullt af skemmtilegu fólki.
Posted in Uncategorized | No Comments »
June 3rd, 2008
Ja nú held ég að ég sé flott á því. Flutti í morgun inn í skrifstofu Stefáns í Reykjavíkurakademíunni og sótti einnig um aðild að akademíunni. Ég kunni nú bara ekki við annað fyrst ég ætla að fara að hanga þarna í sumar og vonandi líka haust. Við ætlum semsagt að tvímenna hér.
Byrjaði náttúrulega á að umsnúa skrifstofunni - ég bara skil ekki hvernig hægt er að sitja með bakið í dyrnar - og sortera og koma fyrir stöflum af greinum. Og svo náttúrulega að blogga um herlegheitin.
Svo þarf ég að ákveða hvert ég eigi að fara í hádegismat. Stærsti kosturinn við að vera með skrifstofu er náttúrlega að þá getur maður farið í mat eins og fín kona.
Með þessu áframhaldi get ég byrjað að skrifa MA ritgerð um næstu mánaðarmót.
Posted in Uncategorized | No Comments »
June 2nd, 2008
Þegar ég ætlaði að fara að sjóða kartöflur með mánudagsfiskinum var eins og ísskápurinn hefði gleypt þær. Eftir mikla leit fundust þær svo í frystihólfinu. Það er greinilega varasamt að ganga frá matvöru annarshugar.
* * *
Garðurinn er að breytast úr illgresisplantekru í drullusvað - sem er gott.
Posted in Uncategorized | No Comments »
May 30th, 2008
- á magann á Laugarveginum. Held að það hafi ekki verið sérlega virðulegt. Annars er langt síðan ég hef dottið svona á nánast rennisléttu undirlagi.
* * *
Vatnspyntingar kl. 17 á Austurvelli. Held nú að ég leggi ekki í að prufa bekkinn sjálf.
Posted in Uncategorized | 1 Comment »