Bakkelsi
Um tveimur vikum áður en Böðvar fæddist tókum við Ólína okkur til og bökuðum bananabrauð og kryddbrauð til að eiga í frystinum. Ætlunin var svo að bjóða gestum sem kæmu til að líta á nýjasta fjölskyldumeðliminn bakkelsi með kaffinu. Það hefur hinsvegar farið minna fyrir því en til stóð. Ég hef nefnilega gúffað þessu í mig sjálf og það með þykku lagi af smjöri og nýmjólk. Svona er nú gestrisnin á þessum bæ!
March 23rd, 2009 at 8:41 pm
Þú þarft örugglega meira á bakkelsinu að halda en gestirnir þessa dagana. Þeir geta líka bara mætt með kökur ef þeir eru svangir!