google
yahoo
bing

Litlir pottar hafa líka eyru

Eitthvað virðist Ólína hafa hlustað á og tekið eftir þjóðfélagsumræðunni undanfarnar vikur og mánuði. Við matarborðið í kvöld sagði hún skyndilega stundar hátt “Pabbi, ég er búin að missa vinnuna”. Við reyndum að ganga á hana og fá að vita hvað hún ætti við en eina svarið sem hún gaf var að hún gæti ekki lengur skrifað. Mér sýnist því allavega að við foreldrarnir þurfum að passa betur hvað við ræðum þegar sumir eru nálægir.

* * *

Ég kjagaði samviskusamlega um miðbæinn í dag í þeirri von að það ýtti aðeins við hinu barninu. Færðin í Norðurmýrinni hefur mér ekki fundist við hæfi óléttrar konu. Því miður virðist gangan lítinn árangur hafa borið.

2 Responses to “Litlir pottar hafa líka eyru”

  1. Jóhanna Says:

    Skrýtið hvað þessi ungi ætlar að láta bíða eftir sér. En það verður nú varla mikið lengur úr þessu. Ég spái tíðindum næsta sólarhringinn og hlakka til að fá fréttir.

  2. Vigdís Says:

    Ólína var einmitt að segja mér frá Nýja Íslandi um daginn. Það þótti mér mjög áhugavert að heyra.

Leave a Reply

You must be logged in to post a comment.