google
yahoo
bing

Sitthvað um pólitík og fleira

Nú hefur mér aðeins gefist tími til að melta niðurstöðu forvals vg í Reykjavík síðasta laugardag og ég get ekki annað sagt en að ég sé bara býsna sátt við útkomuna. Það á bæði við um útkomuna í heild og svo mína stöðu. Ég sóttist vissulega eftir því að skipa 4.sætið á öðrum hvorum framboðslistanum í Reykjavík en hafnaði í því 5. Það er heldur ekkert leyndarmál að það fór svolítið um mig þegar ég sá hverjir voru meðframbjóðendur mínir í forvalinu, þarna voru svo margir öflugir einstaklngar. Niðurstaðan er góð blanda af nýliðun í efstu sætunum og svo reynsluboltum (sem reyndar eru sumir ekki með nema tveggja ára þingreynslu - en verða engu að síður taldir til reynslubolta hér).

* * *

Illugi Gunnarsson skrifar um Kyoto - bókunina í fréttablaðið í dag undir fyrirsögninni “Íslenska ákvæðið” er efnahagsmál”. Það má kannski færa rök fyrir því - en voru þá sjálfstæðis- og framsóknarmenn ekki að hamast í vitlausum ráðherra hér um daginn?
* * *

Mér finnst áhugaverð sú sýn sumra sjálfstæðismanna að vinstri - græn hafi staðið á bak við búsáhaldabyltinguna. Um það get ég fátt annað sagt en að ég væri alveg til í að það hefði verið raunin en er dulítið hrædd um að þá værum við að skreyta okkur með stolnum fjöðrum.

* * *

Barnið væntanlega hefur það greinilega mjög gott í vömbinni á mér. Ég er orðin svolítið óþreyjufull að bíða og svolítið þreytt á því að vera svona þung á mér. Svo er ég farin að horfa löngunaraugum á allskonar föt í fataskápnum mínum.

* * *

Eru vöflur með rabbabarasultu það besta í heimi? Ég er ekki frá því.

2 Responses to “Sitthvað um pólitík og fleira”

  1. Esther Says:

    Þetta er mikill misskilningur. Vöfflur með bláberjasultu eru það besta í heimi.

  2. Lissy Says:

    með rabbabarasultu og rjóma blandað saman.

Leave a Reply

You must be logged in to post a comment.