google
yahoo
bing

Hækkun hlutabréfa

Það er gaman að geta flutt jákvæðar fjármálafréttir núna á þessum síðustu og verstu tímum. En þannig er að hlutabréf í Friðarhúsi hafa rokið upp í verðmæti og á aðalfundi síðasta sunnudag var ákveðið að verð á nýjum hlutabréfum hækki um 50% og verði seld á genginu 1,5 frá og með 1.maí. Nánar má lesa um þetta á Pressunni.

Verst er að Sigurður Flosason er ekki með MA gráðu í hagfræði, né neina sambærilega menntun. Fjármálum þjóðarinnar væri líklega bara fyrir komið í hans höndum eða kannski öllu heldur fötum.

* * *

Annars er eirðarleysið að fara með mig. Ég er semsagt dottin í þá gryfju að vera farin að bíða.

One Response to “Hækkun hlutabréfa”

  1. Esther Says:

    Mæli með Tetris og Bubble Shooter í biðinni.
    Farðu varlega samt. Vil ekki að Stefán þurfi að slíta þig með valdi frá tölvunni í miðjum hríðum.

Leave a Reply

You must be logged in to post a comment.