google
yahoo
bing

Játningar eiginmanns

Eiginmaðurinn játaði bljúgur að hann og barnið hefðu étið súkkulaðið mitt meðan ég var á fundi í gærkvöldi. Mér hafði ekki einu sinni dottið í hug að gruna þau um græsku. Hélt bara að ég hefði gúffað í mig súkkulaðinu í einhverju græðgiskasti og myndi svo ekki eftir neinu.

4 Responses to “Játningar eiginmanns”

  1. Stefán Says:

    Nú er ekki tími til að leita sökudólga.

    Nornaveiðar munu ekki færa þér súkkulaðið aftur!

    Auk þess sem Ólína fékk stærri bitann.

  2. Esther Says:

    Eðlilega. Hvaða kona hefur ekki upplifað súkkulaðiblakkát?

  3. hildigunnur Says:

    tíhí, Stefán og fórstu ekki út og keyptir súkkulaði í staðinn? :D

  4. Svandís Says:

    Nú er ekki vit í að persónugera vandann heldur frekar að horfa til framtíðar!

Leave a Reply

You must be logged in to post a comment.