Allt að gerast
Saturday, February 28th, 2009Fjölskyldan skellti sér í afmæli Birnu Þórðardóttur í dag. Ólína valdi að vera í senjórítukjól sem hæfði tilefninu vel, en henni var nú eiginlega alveg nóg um alla athyglina sem hún fékk. Birna fór í splitt - eða spígat - ég læri aldrei hvort er hvað.
Á morgun verður nóg að gera. Fyrst er það aðalfundur Friðarhúss og svo opið hús í nýrri kosningamiðstöð VG að Tryggvagötu 11, klukkan 14-18.
Þeir sem ætla að kjósa í forvali vg í Reykjavík geta kynnt sér frambóðendurna og hvað þeir standa fyrir hér - í glæsilegum frambjóðendabæklingi. Þar er einnig að finna praktískar upplýsingar um póstkosningu, utankjörfundaratkvæðagreiðslu ásamt sýnishorni af kjörseðlinum og leiðbeiningum um hvernig eigi að fylla seðilinn út.
Stanslaust stuð semsagt. Svo er bara að skrá sig í flokkinn - kjörskrá vegna forvalsins verður lokað á miðnætti 6.mars - og kjósa mig í 4. sætið. Þá verð ég ofsa glöð.
Þá er bara spurning hvort barnið í bumbunni hangi þar inni þar til allt fjörið er yfirstaðið. Settur dagur er 7.mars - sami dagur og forvalið.