google
yahoo
bing

Archive for May, 2008

Datt

Friday, May 30th, 2008
  • á magann á Laugarveginum. Held að það hafi ekki verið sérlega virðulegt. Annars er langt síðan ég hef dottið svona á nánast rennisléttu undirlagi.

* * *

Vatnspyntingar kl. 17 á Austurvelli. Held nú að ég leggi ekki í að prufa bekkinn sjálf.

Þá stórt er spurt

Thursday, May 29th, 2008

Af hverju er svona erfitt að koma sér að verki?

Og raunar má líka bæta annarri spurningu við:

Af hverju er ekkert girnilegt til að borða í skápunum mínum?

Það eru ekki alltaf jólin

Thursday, May 29th, 2008

En öðru máli gegnir greinilega um páskana.

Ég fann mjög óvænt eitt lítið páskaegg lengst uppi í skáp. Það rann sérdeilis ljúflega niður með morgunkaffinu.

Eldhúsdagsumræður

Tuesday, May 27th, 2008

Mikið svakalega var ég ánægð með ræðu Árna Þórs Sigurðssonar. Og af því að ég er í ferkar góðu skapi í kvöld er ég að hugsa um að vera bara líka ánægð með ræðu Guðfinnu Bjarnadóttur. Ekki vegna þess að ég sé sammála henni - ég held reyndar að ég hafi ekki verið sammála neinu sem hún sagði - heldur vegna þess að ég bara trúi ekki öðru en að vitiborið og skynsamt fólk sjái hvað frjálshyggjan sem hún boðar er galin og þar með stefna flokksins sem hún talar fyrir.

Júróvisjon hvað?

Sunday, May 25th, 2008

Ég vissi ekki að ég væri svona góð í norsku. Og það er sko ekki leiðinlegt að eyða seinniparti laugardagskvölds í að spjalla við offíser í norska Hjálpræðishernum. MS - ráðstefnan var hinsvegar ekki alveg nógu áhugaverð. Sjáum til hvort ég nenni að mæta í fyrramálið. Mér finnst ég allavega verða að mæta til að kveðja nýju norsku vini mína.

Hreinsað út

Friday, May 23rd, 2008

Mér finnst þær flottar konurnar sem mættu í dómsmálaráðuneytið í hádeginu.

Ráðstefna og sleikur

Friday, May 23rd, 2008

Það verður víst nóg að gera þessa helgi.

The European MS Platform heldur ráðstefnu í Reykjavík og því ekki annað hægt en að mæta. Eins og venjulega gleymist alveg við skipulagninguna á svona ráðstefnu að taka tillit til þess að fólk með MS hefur orftar en ekki skerta starfsorku. Það er því ekkert grín að sitja á fyrirlestrum allan daginn, mæta í hátíðarmat og djamm um kvöldið og svo aftur á ráðstefnu daginn eftir. Fundaóþolið mitt er strax farið að kvarta - og er ég þó aðeins búin að skrá mig inn og sækja mér dagskrá.

Annars ákváðum við Eiríkur og Svavar að vera svolítið fott á því og borða á Vox Bistro í hádeginu til að koma okkur í smá ráðstefnugír. Allir hinir voru komnir til útands, búa á fínu hóteli og bara gengnir í það hlutverk að vera á MS ráðstefnu. Þannig gátum við allavega þóttst vera með.
Ætli maður kíki svo ekki aðeins á tónleika í kvöld.

Óþol

Thursday, May 22nd, 2008

Þol mitt til að sitja leiðinlega fundi er orðið að engu.

Á sama tíma verður æ algengara að ég slökkvi á sjónvarpinu vegna þess að mér finnst það sem það sýnir leiðinlegt og að ég leggi frá mér hálf lesnar bækur.

Það hvarflar að mér að þetta sé ellimerki. Undirmeðvitundin - eða jafnvel bara meðvitundin - sé að segja mér að það sé of lítið eftir af lífinu til að eyða því á þennan hátt.

Sjáum til hvernig mér gengur að horfa á Evróvisjón á eftir.

Þrekraun

Thursday, May 15th, 2008

Líkamsrækt dagsins var að rífa upp umbúðirnar utan af bókunum sem ég panntaði mér á Amason. Þetta var tvöföld þrekraun þar sem helvítin höfðu sent mér þrjár bækur í tveimur böglum. Mér liggur við að halda að þau á Amason noti hveitilímið hans Þorvaldar til að líma aftur umbúðirnar.

Morgunsvæfa freknan

Thursday, May 15th, 2008

Ég hef verið með eindæmum þreytt á morgnanna undanfarna daga og morgunsvæf eftir því. Nú væri freistandi að kenna MS-inu um en ég er þó hrædd um að spennandi glæpasögur og jafnvel sjónvarpsgláp fram eftir nóttu séu ekki síður veigamiklar breytur í breyttu svefnminstri mínu.

Annars er ekkert vit í því að hanga inni í tölvunni þegar skýin eru búin í bili.

Og með því fór hún út að safna freknum.