Ég er frekar fúl og pirruð akkúrat núna. Ég gleymdi sem sagt að mæta til tannlæknis eins og til hafði staðið í morgun. Þegar ég átti að sitja og engjast í stólnum var ég að bora í nefið og svekkja mig á því að vinir mínir væru ekki nógu duglegir að blogga. Já og aðeins að reyna að lesa smá mannfræði.
* * *
Mig langar að setja ljóst skol í hárið á mér. Mér finnst ég einfaldlega ekki vera nógu mikil ljóska fyrir þessa fallegu sól sem er farin að skína úti og virðist meira að segja ætla að fara að hita landið pínulítið upp næstu dagana. Ég tími samt ekki að fara á hárgreiðslustofu og eyða fult af peningum í strípur.
En hvernig er það annars með þessi skol? Gera þau hárið kannski bara grænt? Hárið mitt á það allavega til að fá á sig græna slikju þegar ég fer í sund.
Ekki það að grænt hár er kannski bara alveg málið. Það myndi allavega brjóta hversdagsleikann svolítið upp. Mig minnir að ég eigi meira að segja grænan ælæner einhversstaðar. Hann myndi örugglega passa vel við.