Útifundur á Lækjartorgi í hádeginu á morgun til að mótmæla blóðbaðinu á Gazaströnd.
Kröfur dagsins eru: Stöðvum fjöldamorðin og rjúfum umsátrið um Gaza. Ræðumenn verða Katrín Fjeldsted læknir og Ögmundur Jónasson alþingismaður. Fundarstjóri er Sveinn Rúnar Hauksson formaður Félagsins Ísland-Palestína.
* * *
Húrra! Við skiluðum skattframtalinu áðan. Ég held að ég hafi aldrei áður skilað skattframtalinu svona snemma. Hef meira verið í því að sækja um frest. Þó var þetta óvenju flókin framtalsgerð, með styrkjum, dagpeningum og allskonar flottheitum. Held þó að okkur hafi tekist að koma öllu fyrir á sínum rétta stað að lokum.
* * *
Svo mælti ég fyrir lagafrumvörpunum mínum á Alþingi í dag. Það var gaman. Þó svo að það hafi alveg verið gaman að mæla fyrir frumvörpum Kötu og Auðar Lilju er það öðruvísi að mæla fyrir sínum eigin málum, sem maður er sjálfur búinn að vera að dútlast í. Verst bara að umhverfisráðherra var ekki á svæðinu. Það var svolítið fúlt.