Einhversstaðar ekki alfjarri heimili mínu er múrbrjótur eða eitthvað álíka tæki að störfum. Síðustu klukkutímana er ég búin að hlusta á taktfast tagg-tagg-tagg-tagg-tagg sem öðruhvoru er rofið með nokkura sekúndna pásu. Ég geri ráð fyrir að þá sé stjórnandi tryllitækisins að dusta af berginu og skoða hvort dínamítstúpan komist fyrir.
Minnst tvisvar á daginn leikur svo húsið mitt á reiðiskjálfi. Fyrst hélt ég að bíll hefði hreinlega keyrt á húsið og fór út í glugga að gá. Núorðið læt ég mér nægja að bregða og þakka fyrir að himnarnir hrynji ekki í höfuðið á mér.
Nú þarf allskonar leyfi til að rífa hús og byggja hús. Og einhverjar takmarkanir eru á því hversu hátt upp í himininn húsin mega ná. En ætli engar takmarkanir séu á því hversu mikið heilu íbúðahverfin mega hristast og skekjast þegar verið er að grafa húsin ofan í jörðina? Þetta er satt best að segja farið að pirra mig verulega.