Archive for December, 2007

Sultaról

Saturday, December 29th, 2007

Ég komst að því í gær að ég kann nú bara betur við mig í græna leðurjakkanum en pelsinum. Skemmti mér annars ágætlega í leikhúsinu. Fannst þetta samt renna svona mis liðlega og þjáist greinilega af einhverri karlrembu því mér fannst karlarnir yfirleitt skemmtilegri en konurnar.

* * *

Í byrjun desember var lyfið MS-lyfið Tysabri talsvert mikið í fréttum og það hversu hægt hefur gengið að hefja notkun á því hér á Íslandi. Það endaði meira að segja með því að heilbrigðisráðherra var á Alþingi spurður hvort og þá hvenær stæði til að fara að gefa þetta lyf. Þá sagði Björn Zoëga, lækningaforstjóri LSH að nú ætti loks að fara að gefa MS-fólki Tysabri og ekki skildu menn betur en að allir sem þyrftu á lyfinu að halda myndu fá það.

Í dag er frétt í Mogganum um að Landsspítalinn þurfi að hagræða um 600-700 milljónir í rekstri sínum á næsta ári. Nú segir Björn Zoëga að ýtrasta aðhalds verði gætt við kaup og notkun á S-merktum lyfjum og að samningi LSH og heilbrigðisráðuneytisins um S-merkt lyf hafi nýverið verið sagt upp en að hann verði endurskoðaður á næsta ári.

Tysabri er S-merkt lyf.

Hvaða áhrif ætli þetta hafi á okkur MS-fólk og vonir okkar um að fá bestu mögulegu meðferð? Ætli þessi niðurskurður þýði kannski að þjónustan verði bara skert við alla aðra en fólk með MS og að það séu bara öll hin S-merktu lyfin sem verða sett í aðhald. Það væri nú einmitt huggun.

Verðandi hjarðdýr?

Thursday, December 27th, 2007

Eftir ofát og leti síðustu daga er hressandi að lesa greinina Stóri sannleikur varnarmálanna eftir Einar Ólafsson á friðarvefnum.

Annars er það helst að frétta að við hjónakorn erum á leiðinni í leikhús í kvöld að sjá Ivanov. Ég á reyndar ekki læmingjapels en kannski ég fari í kanínunni svona til hátíðarbrigða.

Lækurinn

Monday, December 24th, 2007

Síðustu kvöld hef ég verið að glugga í endurminningar Ingibjargar Haraldsdóttur -  ekki tengdanóður minnar heldur hinnar. Óskaplega þykir mér fallegt sem hún segir um lækinn. Ég á mér nefnilega líka svona læk, heima á Norðfirði.

* * *

Hér á Mánagötunni er allt hið rólegasta, þrátt fyrir að von sé á fjórum matargestum. Annaðhvort erum við meistarar skipulagsins eða glundroðinn mun taka öll völd milli klukkan fimm og sex.

Friðarganga á morgun

Saturday, December 22nd, 2007

Fjölskyldunni berast óvenju mörg jólakort í ár. Mig grunar að það standi í einhverju samhengi við þá staðreynd að við ákváðum að senda sjálf engin kort í ár.

* * *

Í gær kom afinn að austan, ásamt Helgu og Magneu. Barnið hefur því lifað í vellystingum og notið þess að láta afa og Helgu stjana við sig. Ég held að það megi alveg segja að henni lítist alltaf betur og betur á þessi jól.

Annars man hún náttúrulega ekkert eftir jólunum í fyrra og virðist byggja hugmyndir sínar um það sem í vændum er svolítið á múmínálfateiknimyndinni, þar sem múmínfjölskyldan vaknar og undirbýr komu jólanna af því allir hinir eru að því en endar á að gefa smáverunum jólatréð, jólamatinn og jólapakkana en legst sjálf aftur í dvala. Og hún veit að hún fær pakka, marga pakka og eftir því sem ísskápurinn hefur verið að fyllast af mat áttar hún sig á því að eitthvað á að borða. Og þá eru nú allir bara bærilega sáttir. Og þá er bara jólatréð eftir - en það kemur.

* * *

Svo minni ég náttúrulega á Friðargönguna á morgun. Hún leggur af stað frá Hlemmi kl. 18. Halla Gunnarsdóttir flytur ræðu á Ingólfstorgi. Svo koma jólin eiginlega bara strax í kjölfarið.

48:50

Thursday, December 20th, 2007

Lengra er sándtrakkið úr Young Guns II ekki. En það gerir kraftaverk. Betri tiltektartónlist er ekki hægt að hugsa sér. Prufiði bara. Ef ég hlusta svo á safndiskinn með Bon Jovi í kvöld verður líklega bara orðið sallafínt hjá okkur áður en pabbi kemur.

Dansandi nágranni

Thursday, December 20th, 2007

Nei því miður, ég er ekki að vísa til Elíasar nágranna míns, þó ég viðurkenni að þá fyrst hefði þetta farið að verða spennandi.

En þar sem ég hengilmænast í tölvunni gýt ég öðruhvort auganu til hins nágrannans sem dansar um íbúð sína með tuskuna á lofti. Kannski ég fari að fordæmi hennar og hunskist til að taka pínulítið til. Það er nú einu sinni von á karli föður mínum til höfuðborgarinnar á morgun.

Annars er nú ekki ilminum fyrir að fara hér í húsinu. Annaðhvort er nýtt frystikistuslys í uppsiglingu eða nágrannarnir hafa tekið forskot á skötuna.

Þess vegna göngum við

Wednesday, December 19th, 2007

Skipuleggjendur friðargöngunnar á Akureyri tiltaka sérstaklega að þar sé gengið gegn stríðinu í Írak. Það geri ég svo sannarlega líka. En því miður eru fleiri stríð sem ég ætla líka að ganga gegn á Þorláksmessu. Má þar t.d. nefna stríð í:

Eþjópíu
Palestínu
Chad
Súdan
Sri Lanka
Kúrdahéruðum
Afganistan
Nígeríu
Kasmír
Sómalíu
Úganda
Laos
Filipseyjum
Ísrael
Myanmar
Kólumbíu

Og örugglega mætti telja upp enn fleiri stríðshrjáða staði. Mig munar svosem ekkert um að ganga bara geng þeim stríðum líka.

Já, sama gamla

Wednesday, December 19th, 2007

Egill Helgason er hvorki friðarsinni né hernaðarandstæðingur. Því hefur hann skýrt og skilmerkilega lýst yfir á blogginu sínu, auk þess sem sú afstaða hefur komið fram í skrifum hans um mörg mál.

Hvers vegna í ósköpunum heldur Egill þá að hann sé markhópurinn með friðargöngunni á Þorláksmessu? Ef marka má þessa færslu, finnst honum það afar merkilegt.

Það má raunar færa rök fyrir því að skipuleggjendum friðargöngu hefði mistekist ætlunarverk sitt hrapalega ef dagskráin höfðaði sérstaklega til Egils Helgasonar. Ætli það væri ekki svipað og ef ég yrði mjög spennt fyrir að mæta á hersýningu.

Og já – Það er bara þetta sama gamla. Það er enn ófriður í Írak, eftirhreytur hersins eru í Grindavík, stöðugar heræfingar á landinu og Ísland enn í NATO.

Hins vegar er það fallega gert af Agli að auglýsa upp göngurnar með þessum hætti.

Háma

Wednesday, December 19th, 2007

Við Erna skelltum okkur í hádeginu á Háskólatorgið nýja. Meðan á byggingu torgsins stóð hafði ég mikla fordóma gagnvart þessu húsi. Og eins og góðum fordómum sæmir voru þeir náttúrulega fyrst og fremst byggðir á vanþekkingu. Ég hafði einhverja óljósa hugmynd um að Bóksala stúdenta ætti að flyta þarna inn en svosem ekkert annað vissi ég og ef mér hefði boðist að skoða teikningu af nýbyggingunni hefði ég líklega afþakkað pent.

Við gæddum okkur á dýrindis plokkfiski í Hámu. Skammtarnir eru reyndar frekar litlir fyrir sterasvangan maga - en það vildi svo heppilega til að Erna var hláf slöpp og lystarlaus svo ég gat graðkað hennar skammti í mig líka. Skv. Stúdentablaðinu mun stefna Hámu vera að hafa sem mest af postulíni og minnst af einnota óumhverfisvænum umbúðum. Og að stunda sanngjörn viðskipti. Það finnst mér vera góð meðmæli með staðnum.

Bóksala stúdenta tekur sig einnig vel út í hinum nýju húsakynnum. Ég meira að segja verslaði tvær bækur þar. En það er leyndarmál hvaða bækur það voru, þar sem jólasveinninn ætlar að gefa fjölskyldumeðlimum þær á vetrarsólstöðum. En mér líst semsagt bara nokkuð vel á hið nýja Háskólatorg og mun örguulega bæði eta og drekka þar í framtíðinni.
* * *

Á vetrarsólstöðum ætlar fjölskyldan að skella sér á Sólstöðublót í Öskjuhlíðinni og svo á jólablótsveislu ásatrúarfélagsins. Ef einhvern langar að koma með þá endilega verið í sambandi og/eða kaupið ykkur miða á blótsveisluna skv. þeim upplýsingum sem gefnar eru upp á heimsíðu ásatrúarfélagsins.

Plögg

Tuesday, December 18th, 2007

Mér var að berast góð sending. Það er bókin Nesk eftir vin minn Jón Knút Ásmundsson, árituð og allt. Og svo er ég meira að segja skrifuð fyrir kommenti á kápunni - svo mér finnst náttúrulega ákaflega mikið til mín koma og að ég eigi nú pínku pons í bókinni.

Allavega er þarna á ferðinni stórskemmtileg bók sem ég mæli með hiklaust með sem jólagjöfinni í ár. Ég er hér með gengin í aðdáendaklúbbinn, orðin grúppía  og þegar farin að hlakka til næstu bókar.

Hér má hlusta á eina bráðskemmtilega sögu.