Bjakk

Orafiskibollur í dós, kartöflur og bleik sósa voru í kvöldmatinn. Barnið sagði “bjakk” við bollunum. Hún dróg þó ekkert í efa að þetta og ekkert annað væri í kvöldmatinn og át þrjár kartöflur með bestu lyst. Smjattaði meira að segja nautnalega meðan hún var að skófla þeim í sig og sagði svo “takki matinn”.

Satt að segja hef ég ekki hugmynd um hvaða, ef nokkurn, lærdóm eigi að draga af þessari sögu.

5 Responses to “Bjakk”

  1. Jóhanna Says:

    Lengi vel þótti mér Ora fiskibollur í dós mun betri en alvöru fiskibollur. Amma bað mig alltaf afsökunar þegar hún sendi mig heim með nýgerðar dýrindis fiskibollur til mömmu. Alvöru fiskibollur eru ekki uppáhaldsmaturinn minn en mér finnst þær samt betri í dag og synd að ég skuli ekki hafa kunnað að meta ömmubollurnar í den.

  2. Erna E. Says:

    Mikið er ég fegin að hafa verið í mat hjá ykkur degi áður en Ora-fiskibollurnar voru á borðum! (Takk kærlega fyrir mig, annars.)

  3. Þórey Says:

    Sammála Jóhönnu. Ég tók orafiskibollur í bleikri mjög lengi fram yfir venjulegu heimagerðu bollurnar hennar mömmu. Var komin framundir tvítugt þegar ég fór að meta þær almennilega.

    Þurfti að skammta ofan í okkur systkinin þegar fiskibollur í bleikri voru á boðstólum. Annars slógumst við. Gleymi líka aldrei hryllingnum þegar mamma reyndi að setja “sínar” fiskibollur í bleika sósu. Usss hvað það var ógeðslegt.

  4. Ingibjorg Stefáns Says:

    Þetta var sérréttur föður míns. Orafiskibollur með bleikri sósu voru reyndar eini rétturinn sem hann eldaði. Þær voru hins vegar mjög vinsælar. Svo mjög að ég hringdi einu sinni í hann til þess að spyrja hann um hvernig hann gerði bleiku sósuna. Get ekki heyrt um þennan rétt án þess að hugsa um pabba…

  5. Vigdís Says:

    Mamma fékk mig til að borða þetta með því að búa til hreiður, þar sem fiskibollurnar voru eggin og hrísgrjónin í kringum hreiðrið. Það var samt reyndar alltaf með karrísósu. Held að ég mundi segja bjakk líka nema að mamma gerði hreiður handa mér.

Leave a Reply