Archive for November, 2007

Skemmtilegt

Thursday, November 29th, 2007

Skemmtilegt að Jón Björn, Norðfirðingur og Framsóknarmaður með meiru, hafi hoppað í ræðustól Alþingis, nánast áður en hann var búinn að prufa hinn stólinn sinn.

Enn skemmtilegra er að hann hafi lagt fram fyrirspurn til heilbrigðisráðherra um nýja MS-lyfið. Nú bíð ég spennt eftir að geta skoðað þetta nánar á vef Alþingsi.

Skunkar atvinnulífsins

Wednesday, November 28th, 2007

Ég held að það séu nú fyrst og fremst þeir einstaklingar sem standa uppi sem öryrkjar sem borga brúsann af því að detta út af íslenskum vinnumarkarði.

Og þegar þú ert á annað borð komin í þá stöðu vera orðin ófær um að taka þátt á vinnumarkaðnum er einmitt svo gott að það sé atvinnulífið sem sér um að skammta þér hungurlúsina.

Er ekki i lagi með menn?

Lyf en ekki heræfingar

Tuesday, November 27th, 2007

Mogginn er í dag með talsvert langa umfjöllun um það hvernig nýjustu og bestu lyfjagjöfinni til MS-sjúklinga er sífellt frestað vegna fjárskorts. Það er óþolandi að fá ekki lyf sem gæti gert mann að mun virkari og nytsamlegri þjóðfélagsþegn, vegna þess að spítalann vantar fjárveitingu.

Ég legg því til að ríkið hætti að borga fyrir heræfingar og noti peningana í lyf handa mér og öðrum í sambærilegri stöðu. Þar með gæti ég vonandi farið að vinna eins og manneskja og þá um leið farið að borga skatta til samfélagsins. Þessa skatta gæti samfélagið svo notað til að efla skólana og jafnvel hækka laun kennara.

Nú er ég reyndar ekki hagfræðingur - og er víst nýbúin að segja frá vanrtú minni á þeirri stétt hér á þessum sama vettvangi - en ég er sannfærð um að það er þjóðhagslega hagkvæmt að eyða peningum í lyf sem auka líkurnar á því að fólk verði vinnufært, allavega meira sjálfbjarga og þar með minna upp á aðra komið.

Við viljum Tysabri.

* * *

Ákvað annars að fá mér heilsubótargöngu út í búð núna í hádeginu. Það reyndist hin mesta glæfraför þar sem göturnar í Norðurmýrinni - og reyndar sumar gangstéttirnar líka - minna helst á skautasvell.

Af takmörkuðum auðlindum

Monday, November 26th, 2007

Dagurinn í dag byrjaði með hressilegasta móti, þar sem ég mætt laust fyrir kl.9 í félagsfræðitíma í Versló til að ræða um pólitík. Það voru nú langt í frá allir þar sammála mér og mínum sjónarmiðum (og hugsanlega bara enginn) en það er alltaf rosalega gaman að tala við hressa krakka sem hafa einhverjar skoðanir á hlutunum. Það kemur mér þó alltaf á óvart hvað menntskælingar geta verið íhaldssamir.

Þegar ég kom heim höfðum við Stefán vaktaskipti, þar sem Ólína var enn með smá hitavellu í gær, og hann fór í vinnuna. Við vorum semsagt kannski aðeins og dugleg að fara með barnið af bæ um helgina. Það var bara allt of freistandi að kíkja með hana á Landsfund SHA og svo í piparkökubakstur til Vigdísar.

En samsagt, eftir vaktaskiptin í morgun bökuðum við Ólína köku og svo sat hún við eldhúsborðið og púslaði meðan ég vaskaði upp. Ótrúlega huggulegt hjá okkur mæðgum. Mig langaði eiginlega mest að ráðast í að þvo eldhúsgluggann og skella upp jólagardínunum (já, þeim sem stundum hafa verið notaðar sem sumargardínur, eða bara hvenær sem er ársins gardínur).

En þar sem orka mín er gríðarlega takmörkuð auðlind, sem ég er þó alltaf betur og betur að læra að nýta með sem hagkvæmustum hætti, ákvað ég að láta það eiga sig. Það er miklu gáfulegra að láta Stefán í það að rífa niður gardínur og fá svo heimilishjálpina á föstudaginn í gluggaþvott. Þá verður líka akkúrat svo passlegur tími til að koma einhverju svona jóla-jóli upp.

Vantrú

Thursday, November 22nd, 2007

Dagurinn í dag hefur ekki orðið til þess að auka trú mína á hagfræðingum.

Wednesday, November 21st, 2007

Ég kom nokkurnvegin heil heim af kvennaráðstefnu í Madrid aðfaranótt mánudagsins. Ein lítil tá þoldi ferðina þó illa - eða öllu heldur það að þurfa að vera lokuð inni í sömu skónum í 13 klst. og svo aftur í nokkrar fleiri klst. daginn eftir vegna þess að ferðataskan mín hafði ekki verið jafn fljót að hlaupa á Heathrow og ég sjálf.

Ýmsar áhugaverðar konur fluttu ýmis áhugaverð erindi á ráðstefnunni. Mesta athygli mína vakti þó ofurtöffarinn Lydia la Riviere-Zijdel. Ótrúlega flott kona sem hefur ótrúlega flotta sýn á kvenna- og fötlunarpólitík. Og svo er sko enginn vælutónn í henni.

Svo finnst mér líka ofursvalt að hún kenni fötluðum konum sjálfsvörn.

Nú er bara að sannfæra öbí um að flytja hana inn, bæði til að flytja erindi og kenna sjálfsvörn.

Sakleysið uppmálað

Wednesday, November 14th, 2007

Það er ekki lítið sem ég hef hneykslast á neyslu og bruðli þjóðarinnar að undanförnu. Mér hefur þó lítið dottið í hug að líta í eigin barm - enda er ég ekkert að bruðla. Svona fyrir utan að skreppa með fjölskylduna út að borða, setja upp nýja skápa og hillur, plana sumarleyfi til útlanda, kaupa smotterí af fötum - allt auðvitað miklar nauðsynjavörur - eða myndi fólk kannski vilja hafa mig halupandi um berrassaða? ha?

Augu mín opnuðust þó skyndilega fyrir bruðli heimilisins þegar ég uppgötvaði fimm tannkremstúpur á baðvaskinum. Ég held að við hljótum að vera eitthvað klikk. Hvað ætli við eyðum miklu í annan óþarfa fyrst okkur tekst að koma okkur upp svona tannkremsbirgðum. Nú verður neysla og eyðsla heimilisins tekin föstum tökum. Ekkert keypt nema llífsnauðsynlegar vörur eins og hollur og kjarngóður matur.
Fyrst ætla ég reyndar aðeins að skreppa til Madrid. En um leið og ég kem heim aftur verður gripið til mikilla sparnaðarráðstafanna. Allavega alveg fram að því að við förum að kaupa jólagjafir.

Bjakk

Friday, November 9th, 2007

Orafiskibollur í dós, kartöflur og bleik sósa voru í kvöldmatinn. Barnið sagði “bjakk” við bollunum. Hún dróg þó ekkert í efa að þetta og ekkert annað væri í kvöldmatinn og át þrjár kartöflur með bestu lyst. Smjattaði meira að segja nautnalega meðan hún var að skófla þeim í sig og sagði svo “takki matinn”.

Satt að segja hef ég ekki hugmynd um hvaða, ef nokkurn, lærdóm eigi að draga af þessari sögu.

Grænir fingur

Wednesday, November 7th, 2007

Eða gildir það kannski ekki líka um pottaplöntur?

Allavega er kominn knúbbur á Nóvember kaktusinn. Honum virðist bara ekkert líka það illa að ég skulimuna eftir að vökva hann á sjö til tíu daga fresti.

Tilfinningalaus?

Wednesday, November 7th, 2007

Eitthvað gekk mér illa að finna til samúðar með Guðmundi Þóroddssyni þrátt fyrir harmagrát hans í hádegisfréttunum.