Archive for July, 2007
2 af 7
Monday, July 9th, 2007Í gær gerði ég mér vinnuplan fyrir daginn í dag. Eitt fyrir gott veður, sól og hita. Annað fyrir skýjaðan himin eða jafnvel rigningu. Núna langar mig miklu frekar að vinna eftir planinu fyrir góðaveðrið - jafnvel þó svo að það verði gert innandyra en þungbúna verkefnið skal það vera.
* * *
Ég hef séð tvö af hinum sjö nýju undrum jarðar. Það er kristslíkneskið í Rio og Machu Picchu í Perú. Gaman væri að geta bætt fleiri undrum við einhverntíma í framtíðinni.
Vondur draumur
Friday, July 6th, 2007Minn elskulegi sambýlismaður skrapp út í sjoppu til að kaupa sælgæti handa litla grísnum mér. Hann keypti kassa af Smá Freyju lakkrís draumum.
Það er hreinlega vitlaust bragð af þeim. Allavega eru þessir smádraumar ekkert eins og stærri draumar og eiginlega bara vondir. Kannski er meinið að hlutföllin milli lakkríss og súkkulaðis eru vitlaus en ég er þó meira inni á því að súkkulaðið sé hreinlega öðruvísi.
Það verður því minna um súkkulaðiát en til stóð. Kannski ég skipti bara yfir í rauðvín í staðinn. Ég neyðist nú samt líklega til að borða allavega einn annan bita til að sannreyna að bragðið sé alveg örugglega vitlaust en að þessi fyrsti biti hafi ekki bara verið eitthvað gallaður.
Lúxusvandamál
Monday, July 2nd, 2007Það er ekki slæmt að hafa svona veður þegar dagsverkið er að lesa sem allra mest. Hitinn í skotinu mínu er reyndar að verða heldur mikill fyrir minn smekk.
Orð dagsins eru: Above all, it hardly matters whether the social model is a system, model, paradigm, idea, definition or even tool. What matters is that the social model is wrong.
Og Shakespeare karlinn er löngu búinn að sannfæra mig.