Ferðalag
Ég skrapp til útlanda og heim aftur í kvöld. Í það minnsta var andlegt álag sem fylgdi ferðalagi mínu upp í Grafarholt í kaffiboð til kunningjakonu sambærilegt við ferð til framandi lands.
Ég villtist nokkrum sinnum en hafði sem betur fer af mikilli forsjálni haft með mér símaskrá með götukorti.
Það eru meira en tvö ár síðan ég síðast fór upp í Grafarholt. Ef mig misminnir ekki fórum við einmitt í sunnudagsbíltúr upp að vatnstönkunum þegar ég var ólétt af Ólínu. Ég tel góðar líkur á að önnur tvö ár líði þar til ég stíg fæti í þetta hverfi næst.
Ég geri mér vel grein fyrir fordómum mínum í garð þessa ábyggilega ágæta hverfis. Mér líkar bara ekki við það, líklega einmitt vegna þess að það er mér algjörlega framandi, ég rata ekki þar og þekki mjög fáa sem þar búa. Ég veit - mjög gábbuleg afstaða.
June 23rd, 2007 at 1:10 pm
Ég er alveg viss um að það er e-ð dýpra að baki fordómum þínum. Ekki rata ég í “útlöndum” en mér hefur samt fundist voða gaman þar og líkar vel við þau fáu sem ég hef heimsótt.
Ég er líka með fordóma fyrir þessu hverfi. Ég held það sé vegna byggingarstílsins. Við fórum einmitt þangað í bíltúr fyrir löngu síðan og það var allt grátt og beint. Gátt/svart, stórt og beinar og sterilar línur er ekki minn tebolli. Borgartúnið finnst mér t.d. orðið alveg afspyrnu ljótt og Skuggahverfið “nýja”. Þvílíkt þunglyndislegur byggingarstíll.
June 23rd, 2007 at 5:36 pm
Bíðið þið nú hægar! Hvernig er Norðurmýrin á litin???? - eða Hlíðarnar? Eru þessi hverfi ekki “grá og bein” líka?
June 23rd, 2007 at 8:46 pm
…jú en með svo fallegum marglitum þökum sem eru eins og þak í laginu:)