Archive for May, 2007

Þarf maður alltaf að hafa titil?

Thursday, May 31st, 2007

Ég er orðin aumingjabloggari par exelance. Reyndar hef ég ekki bara verið aumingjabloggari undanfarna daga, heldur einiglega bara aumingi. Náði mér í leiðinda kvef og magapest á sama tíma.

Stefán er hinsvegar búinn að standa sig afbragðs vel sem yfir hjúkrari og hefur gert sitt besta til að uppfylla alskyns undarlegar kröfur og dynti. Ólína hefur meira verið í hlutverki undir hjúkrarans. Hún hefur þó einnig staðið sig býsna vel - svona með þeim undantekningum þegar hún hefur gleymt sér og hoppað full þjösnalega á veika maganum.

* * *

 Þóra mágkona mín er nú orðin virðulegur verkfræðingur með prófgráðu frá Ameríku. Til hamingju með útskriftina Þóra. Það verður nú gaman að fá hana heim aftur.

Nú ætla ég að skella mér í bíó

Wednesday, May 23rd, 2007

Heimildamyndin “Annað líf Ástþórs” eftir Þorstein Jónsson verður sýnd í Háskólabíói 29.-31. maí, alla dagana klukkan 18:00. Aðeins þessar einu sýningar.

Heimildarmyndin fjallar um Ástþór sem ætlaði sér alltaf að verða bóndi. En hvernig ætlar hann að láta þá drauma rætast eftir að hann er kominn í hjólastól?

Að vera bóndi í hjólastól virðist ekki ganga upp. Ef hann notaði skynsemina, flyttist hann í blokk og tæki upp líf borgarbúans, starf fyrir framan tölvuskjá eða færiband, frístundir við sjónvarpið og vöruúrval í markaði á horninu.

En hann ætlar ekki að sleppa tengslunum við dýrin og náttúruna, þó fæturnir þvælist bara fyrir eins og komið er. Hann ætlar að gera það sem nauðsynlegt er til að geta búið á sinni jörð og rækja þau störf sem þar er að sinna.

Sigursteinn Másson formaður ÖBÍ fór á forsýningu á myndinni og lýsti myndinni þannig: Þorsteinn hefur náð að fanga inntak nútímalegrar hugsunar um fatlaða sem þátttakendur í samfélaginu en ekki stofananamat og sagt okkur hetjusögu sem lætur engan ósnortin. Sértaklega er áhrifamikill kaflinn þar sem Ástþór er með þolinmæði sinni að hlúa að litla kiðlingnum sem skortir jafnvægi.

Myndin er 66 mínútur og aðgangseyrir er 900.
ÖBÍ styrkti gerð hennar.
Nánari upplýsingar á kvikmynd.com

Þannig hljómar færsla nr.666 - nú myndu sumir sko fá sér brjóstsykurmola

Ekki dauð

Tuesday, May 22nd, 2007

Neibb, ég er ekki dauð.
Vinur minn hringdi í morgun. Þar sem ekkert lífsmark hefur verið á síðunni síðan fyrir kosningar, hafði hann smá áhyggjur af því að ég hefði krassað eftir kosningarnar og fengið MS kast.  Neibb. Ekkert MS kast, bara leti.
Eða reyndar fyrst ritgerðaskrif og svo leti. Mikil leti, sem ekki sér fyrir endan á. Sem er reyndar bara alveg passlegt, þar sem ég var búin að ákveða að taka mér frí þessa viku. Svo var meiningin að reyna að fara að vinna í MA rannsókn.

Ég er greinilega á réttri hillu

Sunday, May 6th, 2007


Stuðningur við Sjálfstæðisflokk: 12.5%
Stuðningur við Framsóknarflokk: 40%
Stuðningur við Samfylkinguna: 25%
Stuðningur við Vinstri-Græna: 100%
Stuðningur við Frjálslynda flokkinn: 18%
Stuðningur við Íslandshreyfinguna: 40%

Skoðanir þínar eru í mestu samræmi við skoðanir Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs!

Hér má taka prófið.

Ekkert óvænt

Thursday, May 3rd, 2007

Það kemur varla á óvart, en mér fanst Steingrímur standa sig ansi vel í Kastljósinu hér rétt áðan. En mikill óskaplegur hamagangur var þetta.