Archive for April, 2007

Því fáninn rauði okkar merki er

Monday, April 30th, 2007

Í mínum huga er 1.maí einn merkilegasti dagur ársins. Jafnframt er þetta eini dagurinn sem mér finnst að búðir eigi að vera lokaðar. Samkvæmt því hef ég það fyrir reglu að versla ekkert þennan dag. Ef eitthvað hefur gleymst í innkaupunum í dag verður fjölskyldan því að komast af án þess til 2.maí. Það verður nú varla erfitt.
Að venju er þetta annasamur dagur. Dagurinn er tekinn snemma með morgunkaffi Samtaka hernaðarandstæðinga í Friðarhúsi kl. 11 en morgunkaffið er mjög mikilvægur liður í að efla baráttuandann.

Kröfugangan leggur svo af stað frá Hlemmi kl. 13:30 en safnast verður saman hálftíma áður.

1.maí kaffi vinstri grænna verður svo á NASA kl. 15. Þangað mæta náttúrulega allir og hlusta á mig flytja ávarp í tilefni dagsins.
Þeir sem enn hafa orku eftir allt þetta geta svo farið á baráttutónleika kl. 21.

Semsagt frábær dagur í vændum og eins gott að fara snemma í bælið til að mæta átökum dagsins vel út hvíld. Krafa dagsins er að sjálfsögðu Bætum kjörin - burt með fátækt.

Þrjótar

Sunday, April 29th, 2007

Einhverjir óprúttnir aðilar grýttu eggi í bílinn minn þar sem ég keyrði vestur Bústaðaveginn fyrr í kvöld. Þetta voru sjálfsagt íhaldsmenn sem hafa veitt mér eftirför heim af kvennakvöldi VG í Kragakaffi. Nú verð ég að drattast til að fara að þrífa bílinn minn. Eitthvað segir mér þó að það verði ekki fyrr en eftir 1.maí, enda mun morgundagurinn að líkindum mestmegnis fara í ræðuskrif. Meira um það síðar…

Hyggeligt

Saturday, April 28th, 2007

Er hægt að hafa það mikið huggulegra á laugardagskvöldi en að horfa á Midsommer Murders, borða köku og drekka te. Einmitt. Það er bara ekki hægt.

* * *
Á morgun ætla ég að kíkja á þennan fund.

* * *

Þetta er skemmtilegt blogg.

2ja ára

Monday, April 23rd, 2007

Ólína er tveggja ára í dag. Í gær héldum við afmæli aldarinnar í Friðarhúsi. Allavega 2ja ára afmæli aldarinnar. Fullt af vinum, fullt af ættingjum, fullt af börnum og ótrúlega skemmtilegt. Ólína fékk margar góðar gjafir og ég fékk einar góðar náttbuxur. Þær eru hér með orðnar uppáhalds buxurnar mínar.
* * *

Allir að lesa múrinn.

Meiri glaðningur

Tuesday, April 17th, 2007

Þegar við Ólína komum heim áðan, eftir að hafa hangið allan seinnipartinn í Suðrugötu 3, beið mín böggull. Það var ljóðabókin Þegar ég vakna eftir Val Höskuldsson, árituð og með smá skilaboðum til mín frá höfundinum. Þetta er í annað skipti sem Valur sendir mér ljóðabók eftir sig og það er ótrúlega skemmtilegt að fá svona glaðning inn um bréfalúguna.
Ég er nú ekki búin að lesa bókina alla en er þó búin að leika mér að því að opna hana af handahófi og lesa það ljóð sem ég lendi á. Ljóðið Til frá heillaði mig sérstaklega. Það er ekki spurning hvað verður kvöldlesningin í kvöld.

Miðvikudaginn 2.maí kl. 20 mun Valur lesa úr bók sinni á Hressó, ásamt sex öðrum ljóðakáldum. Verður það ljóðakvöld haldið í tengslum við listahátíð fatlaðra, List án Landamæra.

Takk kærlega fyrir mig Valur.

Glaðningar

Saturday, April 14th, 2007

Fyrir nokkrum dögum kom pakki til Stefáns með póstinum. Reyndar var hann eiginlega til mín, þar sem Stefán hafði pantað bók á Amason sem hann vissi að mig lngaði voða mikið í. Nú er ég semsagt orðin kátur eigandi bókarinnar Disability Rights and Wrongs eftir Tom Shakespeare. Takk Stefán. Bókin verður lesin strax eftir kosningar.

Í kvöld barst mér svo annar glaðningur. Esther - mikil prjónakona, sem ég er tengd með mun flóknari hætti en ég nenni að útskýra - prjónaði fyrir mig stórfallegt ullarpils. Mig hefur lengi langað að eignast ullarpils og nú er ég orðið ofsalega kátur eigandi slíkrar flíkur. Hó ég verð svo svakalega fín þegar ég klæðist því.
* * *

Á morgun verður framboðist í Kolaportinu.

Blygðunarlaust plögg

Wednesday, April 11th, 2007

Páskafríinu er svo sannarlega lokið. Eins og venjulega á ég megnið af súkkulaðinu úr páskaegginu eftir en sælgætið er næstum búið. Bara kúlur eftir. Mér finnst þær ekkert voðalega góðar - en ég hef engar áhyggjur af því að ég éti þær ekki líka á endanum. Svo vondar finnst mér þær nú ekki.

* * *

Kosningabaráttan er að komast á fullt skrið. Ég er þegar búin að fara í nokkrar vinnustaðaheimsóknir. Það er rosalega gaman, þó svo að ég súpi stundum smá hveljur af því að vera hent svona út í djúpulaugina.

* * *

Framtíðin er græn og alveg ógeðlega flott og verður enn flottari þegar við verðum búin að útrýma fátækt úr íslensku samfélagi. - Svo er bara næst að leggja heiminn að fótum sér.

Þvílík hamingja

Thursday, April 5th, 2007

Árni afi er kominn í bæinn.

Helga og Magnea eru reyndar líka ágætar - en þær eru ekki afi.

Vögguvísur

Tuesday, April 3rd, 2007

Ólína hefur verið óvenju lengi að festa svefn síðustu kvöld og það hefur mikið þurft að syngja fyrir hana. Þar sem það eru takmörk fyrir því hversu mörg kvöld í röð maður orkar að syngja Maístjörnuna, Sofðu unga ástin mín og Völuvísu (þó svo að þetta séu vissulega góðir og gegnir söngvar) auk þess sem prógrammið þarf hreinlega að vera miklu lengra, ákvað ég að spreyta mig við Stein Steinarr. Í ljós kom að þar þarf greinilega talsverða upprifjun. Heimurinn og ég fær því að rúlla í geislaspilaranum.

Annað kvöld má því gera ráð fyrir að Verkamaður, Það vex eitt blóm fyrir vestan og Ræfilskvæði verði komin á lagalistann.

Nú kynnu einhverjir að fá þá hugmynd að ég sé eðal söngvari. Því fer þó fjarri. En það vill til að Ólína veit ekki hvernig þessi lög eiga að hljóma og vonandi mun hún ekki bera mikinn skaða af þessu gauli heldur taka viljan fyrir verkið…og sofna.