google
yahoo
bing

Archive for March, 2007

Upprennandi iðnjöfrar

Tuesday, March 27th, 2007

Þegar ég kom heim um hádegisbil var nýja endurvinnslutunnan, sem við pöntuðum okkur í gær, komin. Og með henni komu ýmiskonar fylgihlutir svo við getum flokkað sorpið okkar eftir öllum kúnstarinnar reglum. Hér er hægt að horfa á bráðskemmtilegt fræðslumyndband um notkunarmöguleika hennar.

Við erum ekki búin að henda neinu í tunnuna ennþá en ég er búin a safna nokkrum plöstum sem samviskulega verða sett í poka og svo í tunnuna. Dollan undan skyrinu sem Ólína slafraði í sig þegar hún kom heim úr leikskólanum var t.d. þvegin upp, þurkuð og á endanum lendir hún í tunnunni. Svo eigum við líka fínan bunka af dagblöðum sem yrðu mikið tunnuprýði.
Nú er fjölskyldan á Mánagötu 24 sem sagt orðin lítið tannhjól í alþjóðlegu iðnaðarferli. Hó þetta er svo gaman.

Álhaus

Monday, March 26th, 2007

kálhaus

Tilraun til manndráps

Monday, March 26th, 2007

Einhver hafði skilið leikföng eftir í gangvegi mínum. Þar sem ég vandaði mig við að stíga framhjá þeim lenti ég á öðru dóti í staðinn. Og það var á litlum hjólum. Er hel aum í öðrum úlnliðnum.

* * *

Annars var helgin góð. Ólína fékk pítsu og kók á laugardagskvöldið og var hæstánægð með það. Svo hittum við líka Frey í fyrsta skipti. Hann er myndar piltur.

* * *

Orð vikunnar er hægriglundroði. Einstaklega skemmtilegt orð og svona passlega mikill tungubrjótur.

Miðlun upplýsinga

Friday, March 23rd, 2007

Vinstrihreyfingin - grænt framboð er komin með nýja og flotta heimasíðu. Þar er hægt að finna ýmiskonar upplýsingar, t.d. um flokkinn, stefnumálin og frambjóðendurna. Þar er einnig að finna upplýsingar um utankjörfundaratkvæðagreiðlu, en hún er einmitt hafin nú þegar og því ekki seinna vænna fyrir þá sem búsettir eru erlendis að kynna sér hvernig þau mál öllsömul ganga fyrir sig.

* * *

Svo er nátúrulega líka málið að lesa múrinn.

* * *

Á stefnuskránni er það þó helst að hunskast snemma í bælið. RDK verða því að skemmta sér án mín að þessu sinni.

Þetta er málið

Monday, March 19th, 2007

Stundin: Mánudagskvöldið 19. mars, kl. 20

Staðurinn:
Austurbær (gamla Austurbæjarbíó)Dagskráin:

Ávörp: Guðfríður Lilja Grétarsdóttir og Helgi Hjörvar

Tónlistaratriði: XXX Rottweilerhundar, Ólöf Arnalds & Vilhelm Anton Jónsson

Upplestur: Bragi Ólafsson

Kynnir: Davíð Þór Jónsson

Aðstandendur: Hinir staðföstu stríðsandstæðingar

Samtök hernaðarandstæðinga
MFÍK
Þjóðarhreyfingin - með lýðræði
Ung vinstri græn
& Ungir Jafnaðarmenn

Rautt og bólgið

Friday, March 16th, 2007

Helgin virðist ekki ætla að byrja allt of vel. Ólína kom kát heim úr leikskólanum og sýndi langömmunni og Valda allar sínar bestu hliðar fram eftir degi. Gamanið kárnaði þó mjög skyndilega, barnið rak upp mikið gól og greip um eyrað (sama eyra og alltaf).

Þar sem hún grét mjög mikið og hélt svo óvenju ákveðið um eyrað ákváðum við eftir kvöldmatinn að fara á læknavaktin. (Og föstudagskvöld um kl. 20 er greinilega hárrétti tíminn til að fara þangað. Höfum aldrei áður þyrft að bíða svona stutt). Eyrnaskoðun leiddi í ljós að hægra eyrað er mjög bólgið og eldrautt. Enn einn pensilínkúrinn er því hafinn.

Að vera samkvæmur sjálfum sér

Monday, March 12th, 2007

Ég rak augun í þessa frétt meðan ég var að slafra í mig hádegisverðinum. Einhvernvegin finnst mér þetta að vera tilgagnslausar pælingar hjá Afgönum - svona allavega ef við göngum út frá því að Afganskir stríðsmenn séu prinsippmenn og jafnvel svolítið samkvæmir sjálfum sér.
Og ef ríkisstjórnarflokkunum er einhver alvara með því að hafa samþykkt tillögur örorkumatsnefndar, þar sem m.a. er fjallað um aukna atvinnuþátttöku öryrka, hljóta þeir líka að taka höndum saman með sjúklingum við björgun iðjuþjálfunardeildarinnar.

Ójá. Það finnst mér.

Batnandi maður

Sunday, March 11th, 2007

Þessi helgi er búin að vera frábær í alla staði. Hún byrjaði náttúrulega í útgáfuteiti UVG í Friðarhúsi á föstudagskvöldið. Á laugardagsmorgun var brabra gefið brauð og svo stormað á fund í Suðurgötunni.

Í morgun var haldið á bókamarkað í Perlunni, þar sem allir fjölskyldumeðlimir fengu lesefni við hæfi. Sumir fengu þó aðeins meira en aðrir. Ís, kaffi og kaka á kaffiteríunni á eftir.

Síðdegis skelltum við Stefán okkur svo á sýninguna Batnandi maður hjá Halaleikhópnum. Við erum enn að hlæja að einum brandaranum. Það eru þónokkrar sýningar eftir enn svo það er náttúrulega um að gera fyrir fólk að skella sér.

Enduðum svo á að fá dýrindis lax hjá mömmu. Svona ættu allar helgar að vera. Pólitík, skemmtun og fjölskyldustundir - allt í bland.

Loser

Saturday, March 10th, 2007

Mér er verulega brugðið eftir að hafa dottið niður í  unglingamynd sjónvarpsins í kvöld. Léleg mynd með verulega vafasömum boðskap. Mér finnst eiginlega að ég hljóti að hafa misskilið eitthvað í plottinu allverulega. Kom kannski eitthvað fram á fyrstu 20 mínútunum sem ég ekki sá sem var lykillinn að annari upplifun á myndinni? Ég get hreinlega ekki annað en vonað það.

Allavega virtist það ekki vefjast neitt fyrir ungu piltunum í myndinni að gefa stelpunum dóp svo þeir ættu auðveldara með að fá þær í rúmið með sér. Með gamansömum hætti var dópbyrlunin notuð til að sýna hvað þeir væru nú miklir vitleysingar.

Engar afleiðingar, engir eftirmálar. Stelpurnar virtust ekkert kippa sér upp við það að vera gefið dóp og engum virðist í raun finnast þetta neitt tiltökumál.

Er þetta kannski amerískur veruleiki? Og er þetta að verða íslenskur veruleiki? Er svona mynd normið fyrir unglinga í dag? Ég vona svo sannarlega að upplifun mín sé byggð á hrapalegum misskilningi - annars finnst mér ég næstum því verða að eiga nokkur orð við dagskrárstjóra sjónvarpsins og fá að vita hvað hann/hún hafi eiginlega verið að hugsa.

Hver er hræddur við handalausa manninn?

Thursday, March 8th, 2007

Á morgun ætlum við hjónaleysin að fara og hlusta á þetta erindi.