VG langflottust
Við samþykktum frábærlega flotta framboðslista fyrir höfuðborgarsvæðið fyrr í kvöld. Svo mössum við þetta náttúrulega í vor.
* * *
Í dag horfði ég á Skoppu og Skrítlu fara í húsdýragarðinn. Ég hef alltaf haft fordóma gegn Skoppu og Skrítlu, án þess þó að vita neitt hvað þær væru í raun að bralla.. Hélt einhvernvegin alltaf að þetta væru bara læti og kjánastælar. Það var þó aldeilis ekki raunin. Þetta var bara rólegt og nokkuð skemmtilegt - svona eins og það getur orðið skemmtilegt að horfa á börn leika sér við allskonar dýr og undarlega klæddar fígúrur syngja barnasöngva.
Allavega var þetta mun skemmtilegra en Söngvaborg, sem meira að segja Ólína harðneitar að horfa á. Og sannar að maður verður náttúrulega að kynna sér hlutina en ekki ákveða bara fyrirfram hvernig þeir hljóta að vera.
Takk Salný fyrir að lána okkur Skoppu og Skrítlu.
February 15th, 2007 at 8:40 am
til hamingju við
Klárt við rúllum þessu upp!
February 15th, 2007 at 9:32 am
Þetta eru gullfallegir listar!
February 15th, 2007 at 1:50 pm
Til hamingju með að vera formlega orðin frambjóðandi! Nú er bara að fella ríkisstjórnina!