Hér vantar greinilega Hróa hött
Wednesday, February 28th, 2007Stefán skrifaði í gær um heimilisbókhaldið okkar. Að flestu leyti er ég sammála honum. Við komumst alveg ágætlega af með það sem við höfum á milli handanna. Mestu finnst mér þar skipta að ég fæ ekki í magan af fjárhagsáhyggjum ef við þurfum að fara með Ólínu til læknis, kaupa pensilín eða ef pollagalli týnist á leikskólanum og óhjákvæmilegt er að fjárfesta í nýjum. Fyrir þá sem eru fátækir verða svona atriði nefnilega stórmál.
Við búum í ríku samfélagi og mér finnst það óþolandi að allir skuli ekki hafa það jafn gott og við fjölskyldan. Það er eitthvað mikið að þegar sumir vita ekki aura sinna tal og fljúga um á einkaþotum meðan aðrir fá hnút í magann yfir að þurfa að kaupa nýja skó á barnið sitt. Það er óþolandi að sumir hafi tugi milljóna í ráðstöfunarfé á mánuði en aðrir tugi þúsunda. Af hverju geta ekki allir bara haft nokkra hundraðþúsundkalla?